Rekstrarsvið - Keahótel ehf.
Rekstrarsvið - Keahótel ehf.
Rekstrarsvið - Keahótel ehf.

Framkvæmdastjóri rekstrarsviðs (COO)

Starfsstöð: Reykjavík

Keahótel ehf er spennandi vinnustaður þar sem starfar samheldinn hópur með fjölbreyttan bakgrunn. Við leggjum áherslu á gott viðmót, þjónustulund, metnað, hæfni, og frumkvæði með það að leiðarljósi að skapa eftirsóknarvert og skilvirkt vinnuumhverfi og ánægða viðskiptavini.

Keahótel ehf rekur tíu hótel sem eru Hótel Borg, Sand Hótel, Apótek Hótel, Skuggi Hótel, Storm Hótel og Reykjavík Lights í Reykjavík, Hótel Kea á Akureyri, Sigló Hótel á Siglufirði, Hótel Grímsborgir og Hótel Kötlu í Vík í Mýrdal.

Starfið

Framkvæmdastjóri rekstrarsviðs leiðir rekstur hótelanna með skýrri stefnu og áherslu á gæði, þjónustu og arðsemi. Starfið er lykilhlutverk í framkvæmdastjórn Keahótela og felur í sér náið samstarfs við forstjóra, framkvæmdastjórn og hótelstjóra félagsins.

Þetta er áhugavert og krefjandi stjórnunarhlutverk í vaxandi fyrirtæki og gott tækifæri til að móta framtíð Keahótela.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Tryggja arðbæran rekstur allra hótela félagsins, þar með talið veitingarekstur, í samræmi við samþykkt markmið og mælikvarða.
  • Hámarka rekstrarárangur á öllum sviðum og setja skýr markmið fyrir hótelstjóra.
  • Leggja áherslu á þjálfun og þróun starfsfólks, einkum í þjónustu við gesti.
  • Viðhalda, þróa og innleiða breytingar á stöðluðum verklagsreglum (SOP) á öllum sviðum rekstrarins.
  • Tryggja að vörumerki félagsins, þjónustu staðlar og viðskiptamarkmið séu ávallt í samræmi við rekstrarsamninga og stefnu félagsins.
  • Sjá til þess að reksturinn sé í samræmi við lög, reglugerðir og aðrar kröfur sem gilda um starfsemina.
  • Vera tengiliður við eigendur og fjárfesta í málefnum er varða daglegan rekstur, í samráði við forstjóra og fjármálastjóra.
Menntunar- og hæfniskröfur

Hæfni og reynsla

Við leitum að einstaklingi sem hefur sýnt fram á árangur á sambærilegu sviði.

Hæfniskröfur:

  • Sterkur leiðtogi með góða viðskiptaskilning og getu til að þróa og hrinda í framkvæmd áætlunum sem styðja markmið félagsins.
  • Reynsla af því að leiða og hvetja teymi í kraftmiklu umhverfi
  • Hæfni til að skapa samstöðu og tryggja samræmi í framkvæmd og þjónustu.
  • Framúrskarandi samskiptahæfni, bæði skriflega og munnlega
  • Sterk greiningarhæfni þegar kemur að rekstrarárangri og markmiðasetningu til skemmri og lengri tíma.
  • Hæfni til að fara með viðkvæm mál, fyrirspurnir og kvartanir með fagmennsku og trúnaði.

Menntun og starfsreynsla

  • Menntun sem nýtist í starfi.
  • Reynsla úr hótel- og ferðaþjónustugeiranum er skilyrði.
  • Reynsla í sambærilegu stjórnunarstarfi með víðtæka rekstrarábyrgð.
  • Reynsla af rekstri þriggja og fjögurra stjörnu hótela er kostur.
  • Reynsla af veitingarekstri er kostur.
Auglýsing birt18. júní 2026
Umsóknarfrestur1. júlí 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Suðurlandsbraut 14, 108 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.ÁkveðniPathCreated with Sketch.ÁreiðanleikiPathCreated with Sketch.ÁætlanagerðPathCreated with Sketch.FagmennskaPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.HeiðarleikiPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.Stefnumótun
Starfsgreinar
Starfsmerkingar