

Verkefnastjóri vörugagna hjá 66°Norður
66°Norður leitar að skipulögðum og drífandi verkefnastjóra grunngagna (e. Master Data Coordinator) í rekstrarteymi fyrirtækisins (e. Operations). Um er að ræða nýtt hlutverk sem reynir á ríkt frumkvæði og drifkraft til að byggja upp nýja ferla og skilgreina þarfir gagna þvert á starfsemi fyrirtækisins.
Viðkomandi hefur yfirumsjón með því að grunngögn vara (e. product master data) séu áreiðanleg, rétt og aðgengileg. Starfið felur í sér ábyrgð á samræmingu gagna allt frá hönnun og framleiðslu yfir í flutning vara, markaðsefni og vefverslun.
Starfið býður upp á einstakt tækifæri til að vinna í alþjóðlegu og metnaðarfullu umhverfi, hafa raunveruleg áhrif á starfsemi fyrirtækisins og leiða áfram þróun stafrænna innviða 66°Norður.
Um er að ræða tímabundna stöðu til eins árs. Að ráðningartímanum loknum getur komið til framlengingar eða áframhaldandi ráðningar, með hliðsjón af framvindu verkefnisins og frammistöðu í starfi.
-
Mótun, uppbygging og innleiðing á nýjum ferlum er varða umsjón og meðhöndlun grunngagna fyrirtækisins.
-
Greining og skilgreining á gagnaþörfum ólíkra deilda til að tryggja að réttum gagnaflokkum sé safnað á réttum tíma.
-
Gæðastýring og eftirfylgni þess að öll grunngögn vöru séu tæmandi og rétt við lok hvers tímabils (e. seasonal gates).
-
Stöðug vöktun á gæðum gagna og úrlausn á vöntun eða misræmi upplýsinga í samstarfi við viðkomandi deildir.
-
Skipulagning og stýring á samstarfsfundum á milli deilda til að útdeila ábyrgð á gagnasöfnun og tryggja að tímalínum sé fylgt.
-
Umsjón með innleiðingu á sjálfvirkum kerfum og vöktunartólum til að tilkynna hagsmunaaðilum um breytingar sem hafa áhrif á þeirra verksvið. Hanna og setja upp sjálfvirkar keyrslur með tilkynningum sem tryggja gæði gagna.
-
Virk miðlun upplýsinga og samstarf þvert á allar deildir svo sem hönnun, framleiðslu, markaðsdeild og vefverslun til að tryggja „eina uppsprettu sannleikans“ (e. single source of truth).
-
Menntun eða reynsla sem nýtist í starfi (t.d. á sviði verkefnastjórnunar eða gagnastýringar).
-
Góð reynsla af SQL og hagnýtri gagnavinnslu er skilyrði.
- Reynsla af ERP- eða PIM-kerfum er mikill kostur.
-
Frumkvæði, framkvæmdagleði og hæfni til að vinna algerlega sjálfstætt.
-
Skýr „hands-on“ nálgun með drifkraft til að kafa ofan í gögnin, skilgreina gagnaþarfir og byggja upp ferla frá grunni.
-
Framúrskarandi skipulagshæfni, nákvæmni í vinnubrögðum og geta til að tileinka sér ný kerfi og svið hratt.
-
Einstök samskiptahæfni, lagni við að leiða fólk saman og fylgja eftir tímalínum þvert á ólíkar deildir.
-
Gagnadrifin nálgun á verkefni og ríkur skilningur á mikilvægi gagnagæða fyrir starfsemi fyrirtækisins.
-
Framúrskarandi íslensku og ensku kunnátta, í ræðu og riti.
-
Áhugi eða reynsla af tísku og hönnun er kostur.
Íslenska
Enska










