

Viltu taka þátt í baráttunni gegn netbrotum?
Dómsmálaráðuneytið leitar af öflugum og drífandi lögfræðingi með brennandi áhuga á netbrotum til starfa á skrifstofu alþjóðamála. Skrifstofan fer með málefni afbrotavarna, landamæravörslu og útlendinga og meðal málaflokka eru aðgerðir gegn skipulagðri brotastarfsemi, peningaþvætti, spilling og mútur, netbrot og varnir gegn hryðjuverkum og fjármögnun þeirra.
Leitað er að lögfræðingi til þess að vinna að verkefnum er varða netbrot, alþjóðlega sakamálaaðstoð, varnir gegn hryðjuverkum og fjármögnun þeirra. Í starfinu felst m.a. stefnumótun á málefnasviðinu, umsjón með viðeigandi löggjöf, reglugerðum og stjórnsýsluframkvæmd, auk upplýsingagjafar til Alþingis og fyrirsvar gagnvart einstaklingum, hagsmunaaðilum og félagasamtökum á málefnasviðinu.
- Embættis- eða meistarapróf í lögfræði.
- Þekking og reynsla af stjórnsýslurétti.
- Þekking eða áhugi á tæknilögfræði í breiðu samhengi.
- Þekking og reynsla af alþjóðlegu samstarfi er kostur.
- Mjög góð hæfni í mannlegum samskiptum.
- Fagmennska, frumkvæði, drifkraftur og lausnamiðuð hugsun.
- Mjög gott vald á íslensku og ensku og færni til að tjá sig í ræðu og riti.
Íslenska
Enska










