

Skipulagsstjóri í kvikmyndaframleiðslu
STILL VIVID leitar að aðila til að taka að sér að 70-100% starf á sviði skipulagsstjórnunnar og almennrar aðstoðar við framleiðanda við vinnslu á kvikmyndaverkefnum á öllum stigum frá þróun og fjármögnun til framleiðslu og dreifingar, ásamt daglegum rekstri fyrirtækisins.
Um er að ræða fjölbreytt og lifandi starf þar sem reynir á skipulag, frumkvæði, útsjónarsemi og góð mannleg samskipti. Skipulagsstjóri vinnur með framleiðanda og fær innsýn í öll stig kvikmyndaframleiðslu. Starfið er að mestu leyti unnið frá skrifstofu STILL VIVID á Gufunesinu, en einnig koma tímabil þar sem starfið færist yfir á kvikmyndasett annars staðar á landinu, og mögulegt er einnig að vinna starfið að hluta til í fjarvinnu.
-
Umsjón yfir skipulagi almennt í kringum framleiðslu kvikmynda
-
Bókun á ferðum, bílaleigum, gistingum, o.s.frv.
-
Samskipti við leikara, tökulið, birgja, innlenda og erlenda samstarfsaðila
-
Textaskrif fyrir umsóknir í kvikmyndasjóði, eftirfylgni og skilagreinar
-
Aðstoð við fjármögnun, gerð kostnaðaráætlana og uppgjörs
-
Gagnasöfnun, skjölun, skjalastýring og utanumhald gagna
- Aðstoð við markaðsmál og gerð samfélagsmiðlaefnis
-
Ýmis tilfallandi verkefni sem viðkoma framleiðslu kvikmynda og rekstri skrifstofu
-
Framúrskarandi skipulagshæfni, frumkvæði, sveigjanleiki og sjálfstæð vinnubrögð
-
Jákvæðni og góð hæfni í mannlegum samskiptum
-
Menntun eða starfsreynsla sem nýtist í starfi
-
Áhugi á kvikmyndum og kvikmyndagerð
- Gott vald á íslensku og ensku
-
Bílpróf og bifreið til umráða
-
Góð almenn tölvukunnátta
Enska
Íslenska










