Lífeyrissjóður verzlunarmanna
Lífeyrissjóður verzlunarmanna
Lífeyrissjóður verzlunarmanna

Verkefnastjóri

Viltu leiða verkefni sem móta starfsemi þar sem gæði, traust og fagmennska skipta sköpum?

Við leitum að öflugum, lausnamiðuðum og drífandi verkefnastjóra til starfa á rekstrarsviði, innan verkefnastofu og gæðastjórnunar. Um er að ræða starf í umhverfi þar sem markviss verkefnastjórnun gegnir lykilhlutverki í umbóta- og breytingastjórnun. Sjóðurinn er eftirlitsskyldur aðili og starfsemin kallar á fagleg, öguð og gagnsæ vinnubrögð þar sem vandaður undirbúningur, skýr ábyrgð, áhættumat, framkvæmd og eftirfylgni verkefna skipta miklu máli.

Verkefnastjóri leiðir og samhæfir fjölbreytt verkefni sem snerta alla starfsemi sjóðsins, allt frá mótun verkefnaskilgreiningar, áætlunargerð, forgangsröðun til framkvæmdar, stöðuskýrslugjafar og verkloka. Starfið felur í sér að tryggja yfirsýn yfir framvindu verkefna, styðja við upplýsta ákvarðanatöku og fylgja eftir að verkefni séu unnin í samræmi við samþykkt markmið, gæðakröfur, lögbundnar skyldur og innri reglur sjóðsins.

Starfið felur jafnframt í sér ráðgjöf til stjórnenda og verkefnaeigenda við undirbúning verkefna, skilgreiningu umfangs, áhættu, áhrifa og ávinnings, auk stuðnings við umbótastarf, þróun ferla og innleiðingu breytinga. Verkefnastjóri vinnur náið með stjórnendum og starfsfólki þvert á sjóðinn og gegnir mikilvægu hlutverki í að efla verkefnamenningu í fjölbreyttu umhverfi.

Helstu verkefni:

  • Leiða og stýra verkefnum frá undirbúningi til verkloka samkvæmt viðurkenndri aðferðafræði verkefnastjórnunar.
  • Halda utan um verkefnaskrá, stöðuyfirlit og markvissri eftirfylgni með samþykktum verkefnum.
  • Ráðleggja stjórnendum og verkefnaeigendum við skilgreiningu verkefna, umfang, áhættumat og verklok.
  • Taka virkan þátt í að þróa og bæta verklag innan verkefnastofu og gæðamála.
  • Styðja við þróun, viðhald og innleiðingu gæðastjórnunarkerfi sjóðsins og tryggja að verklag sé í samræmi við lög, reglur og innri kröfur.
  • Leiða og styðja við breytingastjórnun, upplýsingamiðlun og samhæfingu hagsmunaaðila þvert á starfsemina.
  • Styðja við þróun, skráningu og umbætur á ferlum, verklagi og gæðaskjölum.
  • Veita fræðslu og handleiðslu um gæðahandbók, ferla og verklagskröfur.
  • Fylgja eftir umbótaverkefnum sem byggja á niðurstöðum úttekta, frávika, ábendinga og áhættumats.
  • Vinna náið með deildarstjóra að forgangsröðun verkefna milli verkefnastofu og gæðamála.
  • Taka þátt í að efla verkefnamenningu og fagleg vinnubrögð þvert á alla starfsemi sjóðsins.


Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Háskólamenntun eða reynsla sem nýtist í starfi, MPM-gráða er kostur.
  • Að lágmarki 5 ára reynsla af verkefnastjórnun.
  • Reynsla af ferlavinnu, umbótastarfi eða breytingastjórnun er kostur.
  • Góð greiningarhæfni, skipulagshæfni og öguð vinnubrögð.
  • Hæfni til að leiða verkefni og vinna markvisst með ólíkum hagsmunaaðilum.
  • Framúrskarandi færni í samskiptum og upplýsingamiðlun.
  • Góð kunnátta á Microsoft 365, SharePoint og sambærilegum vinnuumhverfum.
  • Sjálfstæði í vinnubrögðum og geta til að forgangsraða og fylgja málum eftir.
  • Frumkvæði, lausnamiðuð hugsun og geta til að stuðla að stöðugum umbótum og faglegri verkefnamenningu.
  • Reynsla af Agile, Scrum eða öðrum viðurkenndum verkefnastjórnunaraðferðum er kostur.
  • Vottun á borð við PMP, PRINCE2 eða sambærileg verkefnastjórnunarvottun er kostur.


LV er leiðandi lífeyrissjóður sem styður við fjárhagslega framtíð sjóðfélaga. Starfsemin felst í marvíslegum verkefnum varðandi móttöku iðgjalda, ávöxtun og umsýslu alþjóðlegs eignasafns  sem og víðtæka þjónustu við sjóðfélaga. Á liðnu ári greiddi sjóðurinn rúma 45 milljarða í lífeyri til ríflega 29 þúsund sjóðfélaga. Fjármunir sjóðfélaga eru ávaxtaðir með gagnsæjum og ábyrgum hætti með samfélagslega ábyrgð að leiðarljósi. Eignir LV eru ávaxtaðar í fimm eignasöfnum og námu 1.566 milljörðum króna í árslok 2025.  

Hjá sjóðnum starfar 68 manna samhent liðsheild þar sem lögð er áhersla á að hver og einn nái að nýta hæfileika sína og þekkingu til að sinna krefjandi verkefnum. Áhersla er lögð á fagleg vinnubrögð, þverfaglegt samstarf, góð samskipti, frumkvæði og hæfni til að laga sig að síbreytilegu umhverfi. 
  

LV býður upp á góða starfsaðstöðu og starfsumhverfi þar sem áhersla er meðal annars lögð á heilbrigt og öruggt starfsumhverfi, jafnræði í stjórnunarstörfum,  tækifæra til starfsþróunar og jafnvægi milli vinnu og einkalífs. LV er jafnlaunavottað,  hefur sett sér stefnu um sjálfbærni í rekstri sjóðsins og vinnur markvisst að því að skapa umhverfi þar sem allir fá tækifæri til að blómstra.   

www.live.is


Umsóknarfrestur er til og með 4. ágúst nk.

Umsókn skal fylgja ferilskrá og ítarlegt kynningarbréf á íslensku þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur um hæfni viðkomandi til að gegna starfinu.

Umsjón með starfinu hafa Jensína K. Böðvarsdóttir ([email protected]) og Unnur Ýr Konráðsdóttir ([email protected]) hjá Vinnvinn.

Auglýsing birt14. júlí 2026
Umsóknarfrestur4. ágúst 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Kringlan 7, 103 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar