Samband íslenskra sparisjóða
Samband íslenskra sparisjóða

Verkefnastjóri viðskiptaþróunar og stafrænna lausna

Verkefnastjóri viðskiptaþróunar og stafrænna lausna

Vilt þú taka þátt í að móta framtíð stafrænnar fjármálaþjónustu?

Samband íslenskra sparisjóða (SÍSP) leitar að metnaðarfullum og lausnamiðuðum aðila til að vinna að áframhaldandi þróun upplýsingatækni, stafrænna lausna og þjónustu sparisjóðanna.

Í starfinu vinnur þú náið með sparisjóðunum, þjónustuaðilum og sérfræðingum að því að þróa nýjar lausnir, bæta þjónustu og skapa aukið virði fyrir viðskiptavini.

Helstu verkefni og ábyrgð

·       Þátttaka og ábyrgð á upplýsingatækni- og þróunarverkefnum

·       Þróa stafrænar lausnir, vörur og þjónustu sparisjóðanna

·       Þarfagreining og greining nýrra tækifæra til þróunar

·       Vinna með þjónustuaðilum og fylgja verkefnum eftir

·       Stuðla að sjálfvirknivæðingu og nýtingu gervigreindar í starfseminni

·       Taka þátt í stefnumótun og áframhaldandi þróun upplýsingatækni

·       Umsjón með vef sparisjóðanna og stafrænum umsóknum

·       Veita starfsfólki sparisjóðanna stuðning í upplýsingatæknimálum

Menntunar- og hæfniskröfur

·       Háskólamenntun sem nýtist í starfi, svo sem tölvunarfræði, verkfræði, viðskiptafræði, verkefnastjórnun eða annað sambærilegt

·       Reynsla af verkefnastjórnun og þróunarverkefnum

·       Ríkur áhugi á stafrænni þróun, nýsköpun, hagnýtingu gervigreindar og tæknilausnum

·       Góð greiningarhæfni og skilningur á samspili tækni og viðskipta

·       Frumkvæði, skipulagshæfni og rík samskiptahæfni

·       Reynsla eða þekking af fjármálum eða upplýsingatækni kostur

Auglýsing birt15. júlí 2026
Umsóknarfrestur4. ágúst 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Glerárgata 36, 600 Akureyri
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar