Kling
Kling

Tæknilegur sölustjóri Kling

Opnaðu dyr, smíðaðu lausnir og leiddu vöxt Kling á Íslandi

Kling er íslenskt greiðslutæknifyrirtæki sem hjálpar fyrirtækjum, einyrkjum og félögum að taka við greiðslum, halda utan um áskriftir og senda rukkanir á einfaldari, hraðari og snjallari hátt.

Við seljum ekki með glærum. Bestu sölufundirnir okkar enda á því að viðskiptavinurinn sér lausnina sína virka fyrir framan sig. Á einum fundi settum við upp tengingu við kerfi viðskiptavinarins á staðnum og það innsiglaði samninginn. Fyrir annan fund smíðuðum við sérsniðna greiðslusíðu fyrir fyrirtækið fimm mínútum áður en fundurinn byrjaði. Þannig viljum við halda áfram að selja og þess vegna leitum við að tæknilegum sölustjóra sem kann bæði að opna dyr og að hugsa í lausnum.

Hlutverkið

  • Að leiða sölu Kling á íslenskum markaði
  • Að móta sölustefnu og byggja upp söluferla frá grunni
  • Að hitta stjórnendur, eigendur og sérfræðinga, setja sig inn í rekstur þeirra og sýna hvernig Kling leysir raunveruleg vandamál
  • Að nota gervigreindarverkfæri til að setja saman sýnidæmi, frumgerðir og tengingar sem gera lausnina áþreifanlega, hvort sem er í undirbúningi fyrir fund, á fundinum sjálfum eða strax að honum loknum

Hver ert þú?

  • Drífandi, sjálfstæður og viðskiptasinnaður einstaklingur sem á auðvelt með að mynda tengsl og opna dyr
  • Getur haldið utan um allt söluferlið, frá fyrsta samtali til undirritaðs samnings
  • Nægilega tæknilæs til að smíða einföld sýnidæmi sjálfstætt og átta sig hratt á því hvað nútíma gervigreindarverkfæri gera mögulegt, hvað er klukkutímaverk og hvað er vikuverkefni
  • Skilur hvernig góð tæknilausn skapar virði og getur komið því skýrt til skila á mannamáli
  • Reynsla af sölu til fyrirtækja (B2B) er kostur en ekki skilyrði

Hvað bjóðum við?

  • Tilbúna vöru sem er þegar farin að skapa raunverulegt virði fyrir íslensk fyrirtæki
  • Öflugt sjálfsafgreiðslukerfi sem sér um minni viðskiptavini svo þú getir einbeitt þér að stærri tækifærum
  • Samstillt teymi sem vinnur hratt en faglega
  • Lykilhlutverk í að móta framtíð fyrirtækisins og frelsi til að gera hlutina vel

Í umsókninni mátt þú gjarnan segja okkur frá einhverju sem þú hefur smíðað, stóru sem smáu.

Auglýsing birt12. júlí 2026
Umsóknarfrestur26. júlí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Vesturhlíð 7, 105 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar