
Tölvulistinn
Tölvulistinn er keðja tölvuverslana sem staðsettar eru um allt land. Tölvulistinn var stofnaður árið 1992 og eru verslanir Tölvulistans staðsettar í Reykjavík, Akureyri, Egilsstöðum, Selfossi og Reykjanesbæ. Verslunin í Reykjavík hefur verið staðsett á Suðurlandsbraut 26 frá árinu 2007 og hefur að geyma mikið úrval af gæða tölvuvörum ásamt fyrirtækjaþjónustu og skrifstofum Tölvulistans.
Tölvulistinn flytur inn og þjónustar tölvuvörur fyrir marga af þekktustu tölvuframleiðendum heims eins og Toshiba, Asus, Acer, Epson, Philips, AOC, CoolerMaster, MSI, Razer, Logitech, Corsair, Western Digital, Intel, AMD, Seagate, Manhattan, Rapoo, Targus, SanDisk, Zyxel, Planet, Fortron, Microsoft, Qnap og Supermicro.
Tölvulistinn er hluti af Heimilistækja fjölskyldunni sem á og rekur fjölbreyttar verslanir um land allt. Verslanir samstæðunnar eru Heimilistæki, Tölvulistinn, Rafland, Byggt og búið, Kúnígúnd og Iittala búðin en auk þess rekur fyrirtækið Raftækjalagerinn og verkstæði. Hjá samstæðunni starfa tæplega 200 starfsmenn í fjölbreyttum störfum þar sem lögð er áhersla á jákvætt starfsumhverfi og vinalegan starfsanda.

Sölufulltrúi - fullt starf
Tölvulistinn leitar að áhugasömum og þjónustulunduðum sölufulltrúa í fullt starf í verslun okkar á Suðurlandsbraut. Við bjóðum upp á framtíðarstarf í öflugu og jákvæðu starfsumhverfi, þar sem ráðgefandi sala og framúrskarandi þjónusta eru í forgrunni.
📅 Vinnutími
- Virka daga kl. 10–18
- Annan hvern laugardag
Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Sala og þjónusta við viðskiptavini með áherslu á faglega ráðgjöf
- Áfyllingar, framstillingar og móttaka á vörum
- Afgreiðsla og afhending pantana
- Þrif og almenn verslunarstörf
- Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
- Reynsla af sölu- og þjónustustörfum er kostur
- Þekking og áhugi á tölvum og raftækjum
- Framúrskarandi þjónustulund og samskiptahæfni
- Heiðarleiki, stundvísi og metnaður
- Góð kunnátta í íslensku og ensku
Auglýsing birt10. júlí 2026
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Suðurlandsbraut 26, 108 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
AfgreiðslaAlmenn tæknikunnáttaFljót/ur að læraFrumkvæðiHeiðarleikiHreint sakavottorðJákvæðniLíkamlegt hreystiNýjungagirniReyklausSamskipti í símaSamskipti með tölvupóstiSamviskusemiSjálfstæð vinnubrögðSkipulagSölumennskaStundvísiSveigjanleikiTeymisvinnaTóbakslausVandvirkniVeiplausVinna undir álagiVöruframsetningWindowsÞjónustulundÞolinmæði
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

SÖLUFULLTRÚI
Sælgæti Sælkerans

Áfyllingar og framsetning á vörum
Retail Support Ísland ehf.

Vaktstjóri á þjónustuborð í fullt starf!
BAUHAUS slhf.

Sölufulltrúi í tölvuverslun - Reykjavík
Tölvutek

Borgarnes: Söluráðgjafi í framtíðarstarf
Húsasmiðjan

Áhaldaleiga Húsasmiðjunnar í Skútuvogi
Húsasmiðjan

Sölufulltrúi - Fullt starf hjá Heimilistækjum
Heimilistæki ehf

Fullt Starf í Versluninni Sportís
Sportís ehf

Reiðhjólaviðgerðarmaður – Útisport Glerártorgi
Útisport

Afgreiðslustarf 👉 Liðið okkar stækkar!
TRI VERSLUN

Verslunarstarf
Rafvörumarkaðurinn

Þjónusturáðgjafi í móttöku bílaverkstæðis
Bílaverkstæðið Fram ehf