
Ungur frumkvöðull leitar að hægri hönd
Hvaða fyrirtæki er þetta?
Um er að ræða félag sem ungur frumkvöðull stofnaði fyrir nokkrum árum. Síðan þá hefur það byggt upp önnur fyrirtæki og sprotaverkefni, keypt sig inn í rekstur annarra félaga og ýmist þróað þau áfram eða fjárfest í þeim. Samhliða er fjöldi annarra verkefna í gangi, hvort sem er ráðgjöf eða annars konar vinna. Starfsemin er að mestu hérlendis en teygir sig út fyrir landsteinana, hluti starfsins felst í fundum erlendis og samskiptum við erlenda aðila.
Fyrirtækin spanna fjölbreytt svið, allt frá hugbúnaðarþróun yfir í framkvæmdir á stórum viðburðum/tónleikum. Í hverju þeirra starfa aðrir aðilar sem reka þau frá degi til dags, en móðurfélagið kemur að þróun og uppbyggingu. Verkefnin eru einfaldlega orðin það mörg og umfangsmikil að þörf er á manneskju í ábyrgðarstöðu til að styðja framkvæmdastjórann í daglegum rekstri sem er, vægast sagt, alls konar.
Í hverju felst starfið?
Það er nánast ógerningur að lýsa hefðbundnum degi, því dagarnir eru það ekki: ný vandamál og tækifæri koma stöðugt upp sem þarf að leysa. Starfið felur meðal annars í sér samskipti við dótturfélögin og að geta gengið í hvaða verkefni sem þar kemur upp, auk funda með fólki alls staðar í samfélaginu og erlendis. Kostur er ef viðkomandi kann vel á samfélagsmiðla og getur keyrt markaðssetningu í nokkrum verkefnum. Þá myndir þú halda utan um dagskrá og skipulag framkvæmdastjórans, svo gott er að hafa skipulagið á hreinu eða geta tileinkað sér það fljótt.
Í grófum dráttum er starfið síbreytilegt og hentar alls ekki öllum. Viðkomandi þarf að vera úrræðagóður, hugmyndaríkur og skipulagður, en mikilvægast af öllu er að geta unnið sjálfstætt og átt frumkvæði að því að ganga í verkefni.
Starfinu fylgir ákveðin óvissa, en fyrir réttu manneskjuna er þetta draumur. Þú starfar í hröðu umhverfi þar sem enginn dagur er eins, ferðast um heiminn og hittir ótrúlegt fólk. Þér yrði veitt fullt traust til að sinna þínum verkefnum á eigin forsendum, og þú sæir aldrei stimpilklukku framar.
Starfið er auglýst sem hluta- eða fullt starf, allt eftir samkomulagi. Fyrir réttu manneskjuna má sveigja það algjörlega til, þ.e. vinnutíma, álag og fleira, þannig að vel má sinna öðru starfi, námi eða eigin sprotaverkefnum samhliða — svo lengi sem þínum verkefnum er skilað.
Hverjum erum við að leita að?
Einhvern sem vill ekki vera í 9-5 vinnu og vill ná árangri. Hin fullkomna manneskja er sjálfstæð, skipulögð, skapandi og með miklar væntingar til lífsins. Tækifærin eru gríðarleg, og gangi samstarfið við framkvæmdastjórann vel gæti þetta orðið æviráðning.
Ekki er gerð krafa um háskólapróf, eða að hafa sérstaka reynslu af rekstri, verkefnastjórnun eða sköpun, en það er kostur. Mestu máli skiptir persónugerð og vilji til verka.
Farið verður yfir umsóknir jafnóðum, en einungis verður ráðið finnist rétt manneskja í starfið. Laun samkvæmt samkomulagi.
Enska
Íslenska










