Coripharma ehf.
Coripharma ehf.
Coripharma ehf.

Commerical Operation Coordinator

Coripharma leitar að skipulögðum, sjálfstæðum og lausnamiðuðum einstaklingi til að sinna fjölbreyttu starfi sem styður við teymi viðskiptaþróunar Coripharma. Um er að ræða mikilvægt stuðningshlutverk þar sem viðkomandi sér um samhæfingu verkefna, utanumhaldi lykilgagna, umsjón með markaðs- og fyrirtækjaefni, skipulagningu viðburða og önnur verkefni sem tengjast alþjóðlegri starfsemi fyrirtækisins.

Starfið hentar einstaklingi sem hefur sterka skipulagshæfileika, auga fyrir smáatriðum og hefur ánægju af því að halda utan um mörg verkefni samtímis.

Helstu verkefni

  • Viðhald og uppfærsla lykilgagna, ásamt því að tryggja gæði, nákvæmni og aðgengi upplýsinga fyrir viðskiptaþróunarteymi fyrirtækisins.
  • Stuðningur við gerð kynningarefnis og önnur markaðstengd verkefni eftir þörfum.
  • Umsjón með vefsíðu Coripharma og tryggja að upplýsingar séu réttar, uppfærðar og í samræmi við ímynd fyrirtækisins.
  • Ábyrgð á skipulagningu og framkvæmd erlendra viðburða, þar á meðal almennu utanumhaldi og kostnaðareftirliti.
  • Skipulagning funda, dagskrár og ferðalaga þvert á deildir fyrirtækisins.
  • Þátttaka í þverfaglegum verkefnum innan fyrirtækisins, auk þess að leiða og samhæfa afmörkuð verkefni innan deildarinnar.

Við leitum að einstaklingi sem:

  • Hefur menntun og reynslu sem nýtist í starfi.
  • Er skipulagður, nákvæmur og sjálfstæður í vinnubrögðum.
  • Er með góða samskipta- og samstarfshæfileika.
  • Nær að halda utan um mörg verkefni í senn og fylgja þeim eftir til loka.
  • Er með góða almenna tölvukunnáttu og reynslu af Microsoft Office 365.
  • Býr yfir góðri íslensku- og enskukunnáttu í ræðu og riti.
  • Reynsla af lyfjaiðnaði, GMP umhverfi eða gæðakerfum er kostur.

Við bjóðum:

  • Fjölbreytt og áhugavert starf í alþjóðlegu og vaxandi lyfjafyrirtæki.
  • Samheldinn og faglegan vinnustað þar sem gæði, öryggi og samvinna eru í fyrirrúmi.
  • Sveigjanlegan vinnutíma.
  • Niðurgreiddan hádegismat.

Coripharma er íslenskt nýsköpunarfyrirtæki með um 230 starfsmenn sem byggir á traustum grunni lyfjaþróunar og framleiðslu á Íslandi. Félagið sérhæfir sig í þróun, framleiðslu og útflutningi samheitalyfja ásamt því að sinna verktökuframleiðslu fyrir önnur lyfjafyrirtæki.

Frá því að félagið hóf starfsemi árið 2018 hefur það hafið framleiðslu á 26 lyfjum og er með 21 ný lyf í þróun. Nánari upplýsingar um Coripharma má finna á www.coripharma.is

Með umsókn skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni viðkomandi til að gegna starfinu rökstudd.

Umsóknarfrestur er til og með 13 ágúst næstkomandi.

Auglýsing birt28. júlí 2026
Umsóknarfrestur13. ágúst 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Reykjavíkurvegur 76, 220 Hafnarfjörður
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.GreinaskrifPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.MarkaðsmálPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.Verkefnastjórnun
Starfsgreinar
Starfsmerkingar