Brunavarnir Rangárvallasýslu bs.
Brunavarnir Rangárvallasýslu bs.

Varaslökkviliðsstjóri

Brunavarnir Rangárvallasýslu bs. óska eftir að ráða varaslökkviliðsstjóra.

Starfið er laust frá og með 1. september 2026.

Starfsemi Brunavarna Rangárvallasýslu bs. heyrir undir sveitarfélögin í Rangárvallasýslu, Ásahrepp, Rangárþing ytra og Rangárþing eystra.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Varaslökkviliðsstjóri er staðgengill slökkviliðsstjóra og ber ábyrgð á faglegri starfsemi Brunavarna Rangárvallasýslu í samvinnu við slökkviliðsstjóra.
  • Umsjón með þjálfun slökkviliðsins ásamt slökkviliðsstjóra.
  • Daglegt eldvarnareftirlit, úttektir og yfirferð uppdrátta í samvinnu við slökkviliðsstjóra.
  • Viðhald bíla og búnaðar slökkviliðsins.
  • Telst til vakthafandi liðsheildar og sinnir útköllum þegar þörf er á.
  • Ýmis verkefni s.s. ráðgjöf og fræðslu.
  • Starfar í samræmi við lög, reglugerðir, starfslýsingu og samþykktir Byggðarsamlagsins.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Umsækjendi skal uppfylla skilyrði reglugerðar nr. 792/2001 um menntun, réttindi og skyldur slökkviliðsmanna og laga nr. 75/2000 um brunamál.
  • Vera með löggildingu sem slökkviliðsmaður.
  • Hafa lokið námi I og II í eldvarnareftirliti fyrir eldvarnareftirlitsmenn frá HMS.
  • Hafa aukin ökuréttindi (C) til að stjórna vörubifreið.
  • Hafa lokið stjórnenda- og þjálfunarstjóranámi frá HMS.
  • Menntun í vélvirkjun eða sambærileg menntun er kostur.
  • Hafa starfað að lágmarki í eitt ár í slökkviliði sem löggiltur slökkviliðsmaður.
  • Hafa starfsréttindi sem reykkafari er kostur.
  • Umsækjendi skal hafa góða líkamsburði, vera andlega og líkamlega heilbrigður, reglusamur og háttvís, hafa góða sjón og heyrn og ekki vera haldinn lofthræðslu eða innilokunarkennd.
  • Hafa góða leiðtoga- og stjórnunarhæfni ásamt færni í mannlegum samskiptum og góðan samstarfsvilja.
  • Sjálfstæði í störfum, auk góðrar skipulagshæfni, sveigjanleika, víðsýni og vilja til að tileinka sér nýjungar.
  • Umsækandi þarf að geta starfað undir álagi og vera tilbúinn að gangast undir ítarlega læknisskoðun og þrekpróf.
  • Hafa góða almenna tölvukunnáttu.
  • Góð íslensku- og enskukunnátta er æskileg.
  • Hreint sakavottorð í samræmi við lög.
Auglýsing birt24. júlí 2026
Umsóknarfrestur9. ágúst 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Hlíðarvegur 16
Laufskálum 2
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar