Fastus
Fastus
Fastus

Tæknimaður – Fastus Akureyri

Fastus leitar að metnaðarfullum, sjálfstæðum og lausnamiðuðum tæknimanni í fjölbreytt starf. Um er að ræða verkefni tengd uppsetningu, viðgerðum og þjónustu við tæki sem seld eru hjá Fastus til fjölbreyttra viðskiptavina. Önnur verkefni sem heyra undir starfið er gerð verklýsinga fyrir unnin verk, fagleg ráðgjöf, lausn tæknilegra mála og stuðningur við aðra tæknimenn. Leitað er að einstaklingi með ríka þjónustulund, góða samskiptahæfni og frumkvæði í starfi.

Viðkomandi mun koma til með að starfa í fjölbreyttu og lifandi umhverfi með öflugu teymi. Um er að ræða 100% starf á dagvinnutímabilinu 08:00 - 16:00.

Eingöngu er tekið við umsóknum og fyrirspurnum í gegnum Alfreð.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Meginábyrgð á tilteknum vörumerkjum og tækjaflokkum.
  • Viðhaldi og viðgerðum á stóreldhústækjum.
  • Uppsetningar á stóreldhústækjum.
  • Að tryggja gæði, öryggi og rétta virkni tækja eftir viðgerðir.
  • Faglegri þjónustu við viðskiptavini og samstarfsaðila.
  • Samskiptum við viðskiptavini og ráðgjöf um notkun og viðhald.
  • Réttri skráningu og eftirfylgni verkefna.
  • Stuðningur og leiðsögn annarra tæknimanna.
  • Önnur tilfallandi verkefni.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Leitað er að jákvæðum einstaklingum sem er sjálfstæðir, skipulagðir og eiga auðvelt með mannleg samskipti.
  • Sjálfstæði og lausnarmiðuð hugsun.
  • Bílpróf.
  • Góð samskiptafærni á íslensku og ensku.
Auglýsing birt20. júlí 2026
Umsóknarfrestur3. ágúst 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Hvannavellir 12, 600 Akureyri
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FagmennskaPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.RafvirkjunPathCreated with Sketch.Samviskusemi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar