

Tæknifólk í hleðsluþjónustu ON
Viltu taka þátt í að hækka spennustigið í orkuskiptum?
Orka náttúrunnar leitar að aflmiklum rafvirkja til að taka þátt í að hækka spennustigið í orkuskiptum.
Ef þú vilt setja handbragð þitt á framtíðarsamgöngur á Íslandi þá hvetjum við þig til þess að sækja um starfið.
Hleðsluþjónusta ON sinnir fjölbreyttum og krefjandi verkefnum, s.s. við uppsetningu-, viðhald- og viðgerðir á búnaði hleðslustöðva auk viðgerða og viðhaldi fjarskiptakerfa og annarra stoðkerfa.
Í hleðsluteymi ON munt þú gegna mikilvægu hlutverki í áframhaldandi þróun á þjónustu við viðskiptavini fyrirtækisins, þá ánægðustu á raforkumarkaði samkvæmt Ánægjuvoginni.
Við höfum mikinn áhuga á að bæta einstakling í teymið sem býr yfir ríkri þjónustulund og góðri tölvukunnáttu.
Við leitum sérstaklega að einstaklingum sem:
- Hafa lokið sveinsprófi í rafvirkjun/rafeindavirkjun eða sambærilegu námi
- Búa yfir þekkingu á netkerfum og fjarskiptalausnum
- Hafa gott vald á íslenskri og enskri tungu
- Búa yfir skipulagsfærni og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Eru lausnamiðaðir og áhugasamir um að læra nýja hluti
- Geta framvísað gildum ökuréttindum
- Búa yfir ríkri öryggisvitund
Umsókn um starfið skal fylgja ferilskrá og kynningabréf þar sem umsækjendur gera grein fyrir hæfni sinni í starfið með vísan í hæfniskröfur.
Íslenska
Enska










