DTE
DTE
DTE

Rafvirki

DTE leitar að reynslumiklum og handlögnum rafvirkja til starfa á spennandi tímamótum í uppbyggingu fyrirtækisins.

Sem hluti af afhendingarteymi DTE kemur þú að smíði og samsetningu á háþróuðum iðnaðarkerfum sem sameina lasertækni, ljósfræði, róbótatækni, sjálfvirknibúnað, hugbúnað og rauntímamælingar. Kerfin eru afhent leiðandi álframleiðendum um allan heim.

Þú gegnir lykilhlutverki í afhendingarferlinu, allt frá samsetningu og raflögn stjórnskápa til prófana, uppfærslna og endurbyggingu á kerfum okkar hjá viðskiptavinum. Þú tryggir að hvert kerfi uppfylli ströngustu kröfur um gæði, öryggi og áreiðanleika.

Ef þú hefur gaman af verklegum tæknistörfum og nýtur þess að vinna í öflugu og samheldnu teymi þar sem verkefnin eru fjölbreytt og krefjandi, þá viljum við heyra frá þér. Við leitum að skipulögðum og lausnamiðuðum einstaklingi sem vinnur af nákvæmni og leggur ríka áherslu á öryggi, gæði og góða þjónustu.

Starfið er staðsett á Íslandi og umsækjendur þurfa að hafa gilt atvinnuleyfi hér á landi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Samsetning búnaðar samkvæmt raflagnateikningum og tækniforskriftum.
  • Prófun og yfirferð á samsettum búnaði til að tryggja gæði og virkni áður en honum er pakkað.
  • Viðhalda háum gæðastöðlum í gegnum allt samsetningar- og prófunarferlið.
  • Undirbúa og pakka búnaði til afhendingar til viðskiptavina.
  • Sinna uppfærslum, endurbyggingu og viðgerðum á búnaði hjá viðskiptavinum.
  • Greina og leysa rafmagns- og vélræn vandamál.
  • Tryggja að vinna sé í samræmi við verklag fyrirtækisins, öryggiskröfur og alþjóðlega staðla.
  • Halda utan um þjónustuskrár og tæknilega skjölun.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Sveinspróf í rafvirkjun.
  • 3–5 ára reynsla af rafmagnssamsetningu eða vélasmíði fyrir iðnaðar- eða framleiðslubúnað.
  • Reynsla af iðnaðarstýrikerfum (PLC) og iðnaðarsamskiptakerfum er kostur.
  • Reynsla úr áliðnaði, málmiðnaði, framleiðslu, róbótatækni, vélasmíði eða öðrum þungaiðnaði er kostur.
  • Reynsla af vettvangsþjónustu, gangsetningu búnaðar eða þjónustu við viðskiptavini er kostur.
Um DTE

DTE er íslenskt djúptæknifyrirtæki sem þróar háþróuð mælikerfi fyrir málmiðnaðinn. Eftir farsæla innleiðingu tækninnar hjá leiðandi álframleiðendum er fyrirtækið nú á spennandi vaxtarskeiði og eykur hratt umsvif sín á alþjóðlegum mörkuðum.

Tækni DTE veitir rauntímaupplýsingar um efnasamsetningu bráðins málms og gerir framleiðendum kleift að stýra framleiðsluferlum sínum af áður óþekktri nákvæmni.

Með því að sameina leysitækni, ljósfræði, sjálfvirknilausnir, róbótatækni og hugbúnað leggur DTE grunninn að Metals Intelligence – nýrri kynslóð gagnadrifinnar og sjálfvirkrar málmframleiðslu. Lausnir okkar hjálpa viðskiptavinum að bæta gæði, auka framleiðni, draga úr losun og þróa framleiðsluferli sín í átt að aukinni sjálfbærni og sjálfvirkni.

Tækifæri

Allir starfsmenn DTE taka þátt í kaupréttarkerfi fyrirtækisins því við teljum að þeir sem skapa verðmæti eigi einnig að njóta árangursins.

Með vexti fyrirtækisins skapast tækifæri til að axla aukna ábyrgð, leiðbeina nýjum samstarfsfélögum og taka þátt í að þróa framleiðsluaðferðir og bæta samsetningarferli.

Þú færð tækifæri til að starfa með öflugum hópi sérfræðinga sem búa yfir djúpri tækniþekkingu, skörpum huga og metnaði fyrir því að gera hlutina rétt. Við erum staðráðin í að ná árangri, trúum á mikilvægi verkefnisins okkar og leggjum jafnframt áherslu á að hafa gaman í vinnunni.

Hæfni og persónueiginleikar
  • Góð verkleg færni á sviði rafmagns og vélbúnaðar.
  • Öflug greiningar- og lausnamiðuð hugsun.
  • Geta til að vinna sjálfstætt sem og í teymi.
  • Nákvæm vinnubrögð og mikill metnaður fyrir vönduðum vinnubrögðum.
  • Framúrskarandi samskiptahæfni og þjónustulund.
  • Góð tölvukunnátta og hæfni til að lesa og vinna eftir teikningum, handbókum og tæknigögnum.
  • Vönduð nálgun og hæfni  til skjölunar.
  • Sterk öryggisvitund og vilji til stöðugra umbóta.
  • Góð enskukunnátta í ræðu og riti er skilyrði. Önnur tungumál eru kostur.
Auglýsing birt8. júlí 2026
Umsóknarfrestur3. ágúst 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Framúrskarandi
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Lambhagavegur 5, 113 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.BilanagreiningPathCreated with Sketch.PLC forritunPathCreated with Sketch.RafvirkjunPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.Vandvirkni
Starfsgreinar
Starfsmerkingar