
Gaflarar ehf.
Gaflarar ehf. eru rótgróið rafverktakafyrirtæki í Hafnarfirði. Hjá okkur starfar öflugur hópur rafvirkja og tæknifólks sem sinnir fjölbreyttum verkefnum fyrir fyrirtæki, sveitarfélög, iðnað og einstaklinga. Við leggjum áherslu á fagmennsku, traust samstarf, góða þjónustu og stöðuga þróun í takt við nýja tækni.
Rafvirkjar óskast – Vertu hluti af öflugu teymi Gaflara
Við leitum að rafvirkja með gilt sveinspróf sem leggur metnað í fagleg vinnubrögð og vill taka þátt í fjölbreyttum verkefnum með öflugu teymi Gaflara.
Starfið felur í sér fjölbreytt raflagnaverkefni fyrir fyrirtæki, stofnanir og einstaklinga. Verkefnin eru að mestu á höfuðborgarsvæðinu en geta einnig verið víðs vegar um landið eftir eðli verkefna. Við leggjum áherslu á sjálfstæð vinnubrögð, fagmennsku, örugga og góða þjónustu við viðskiptavini.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Almenn raflagnavinna í nýbyggingum og eldri mannvirkjum.
- Uppsetning, viðhald og bilanagreining rafbúnaðar.
- Þjónustuverkefni fyrir fyrirtæki, stofnanir og einstaklinga.
- Vinna samkvæmt teikningum, verklýsingum og gildandi reglum.
- Samskipti við viðskiptavini og samstarfsaðila á verkstað.
Við bjóðum
- Fjölbreytt og krefjandi verkefni.
- Sterkan og samheldinn vinnustað.
- Tækifæri til starfsþróunar og símenntunar.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Gilt sveinspróf í rafvirkjun.
- Gilt ökuskírteini.
- Sjálfstæð og vönduð vinnubrögð.
- Góð samskiptahæfni.
Auglýsing birt30. júní 2026
Umsóknarfrestur31. júlí 2026
Tungumálahæfni
EnskaNauðsyn
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Lónsbraut 2, 220 Hafnarfjörður
Starfstegund
Hæfni
Rafvirkjun
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Rafvirki eða rafvirkjanemi með reynslu
Rafsveinn ehf

Rafvirki - Vélstjóri - Vélvirki
Heitirpottar.is

Við leitum að rafvirkja eða rafeindavirkja í samsetningu á rafbúnaði og vogum
JBT Marel

Ljósameistarann vantar fleiri hendur á verkstæði
Ljósameistarinn ehf

Söluráðgjafi rafbúnaðar hjá Johan Rönning í Reykjanesbæ
Johan Rönning

Kennarar við Tækniskólann - raftæknigreinar
Tækniskólinn

Commissioning Manager
atNorth

Tengdu þig við okkur - rafvirki á Hvolsvelli
Rarik ohf.

Verkstjóri rafmagns á Suðurnesjum
HS Veitur hf

Tæknimaður á verkstæði / Raftæki
Raftækjaverkstæðið

Uppsetning og viðhald á sjálfvirkum búnaði.
Járn og Gler hf

Tæknimaður - uppsetning, gangsetning og þjónusta
Thor Ice Chilling Solution