
atNorth
atNorth hefur frá 2009 verið brautryðjandi í hönnun, uppbyggingu og rekstri hátæknigagnavera á Íslandi, Svíþjóð, Finnlandi og Danmörku. Meðal viðskiptavina atNorth eru alþjóðleg fyrirtæki og stofnanir sem starfa í fjölmörgum greinum, svo sem við rannsóknir, í heilbrigðisgeiranum, í fjármálaiðnaði og veðurfræði, sem nýta þjónustu atNorth til þess að vinna gögn með hámarks afköstum á hagkvæman og umhverfisvænan hátt.
Með staðsetningu gagnavera atNorth á Norðurlöndunum getur fyrirtækið nýtt umhverfisaðstæður svo sem loftslag og nýtingu hita sem myndast í gagnaverunum til að ná fram betri orkunýtingu en þekkist annars staðar við rekstur gagnavera, ásamt því að knýja gagnaverin með endurnýjanlegri orku. Hringrásarhagkerfið sem byggir á grunni endurnýjanlegrar orku og hagkvæmrar orkunýtingar er haft að leiðarljósi við hönnun gagnavera atNorth.
Höfuðstöðvar atNorth eru í Reykjavík, en fyrirtækið rekur sjö gagnaver á Norðurlöndum. Á árinu 2024 verða tvö ný gagnver tekin í notkun í Finnlandi og Danmörku. Frekari upplýsingar um atNorth er að finna á heimasíðu fyrirtækisins atnorth.com og eins má fylgja atNorth á Linkedin og Facebook.
Rafvirki / Rafmagnssérfræðingur
atNorth heldur áfram að stækka starfsemi sína á Fitjum og leitar að kraftmiklum reynslubolta í starf í rafvirkja/rafmagnssérfræðings.
Við kunnum að meta góða liðsfélaga sem eru áhugasamir um að læra og vaxa í heimi gagnavera og gervigreindar.
Áreiðanleg rafkerfi eru mikilvægur hlekkur í starfsemi gagnavera okkar og mikilvægt að uppsetning þeirra, viðhald og rekstur séu með skilvirkum og öruggum hætti.
Þetta starf er ráðning til framtíðar og fullt stöðugildi. Starfið hentar öllum kynjum.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Ábyrgð og stýring á rafmagnskerfum og búnaði
- Tæknileg sérfræðiaðstoð við framkvæmdir, breytingar og daglegan rekstur gagnaversins
- Þátttaka í þróun og innleiðingu öryggisáætlana og gæðaeftirlits
- Ábyrgð á skipulagi viðhalds og bilanagreininga
- Framkvæmd og stuðningur við fyrirbyggjandi viðhald, viðgerðir, uppsetningu og gangsetningu rafmagnskerfa
- Tryggja að vinnuumhverfi og verklag séu í samræmi við öryggis- og gæðastaðla
- Þátttaka í skýrslu- og ætlanagerð
- Leiða umbótaverkefni og stöðuga þróun ásamt því að þjálfa og leiðbeina starfsfólki
- Þjónusta og samskipti við viðskiptavini
- Önnur verkefni í samráði við stjórnendur og samstarfsfólk
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun í rafvirkjun, önnur tengd framhaldsmenntun kostur
- Þekking og reynsla af lágspennu
- Víðtæk þekking á virkni rafkerfa og búnaðar
- Góð samskiptahæfni og geta til að vinna þvert á teymi
- Sjálfstæð skipulögð vinnubrögð og frumkvæði
- Umbótahugarfar, örygggisvitund og þjónustulund
- Góð kunnátta í ensku, bæði skrifleg og töluð
- Hreint sakavottorð
Helstu kostir þess að vinna hjá atNorth eru
- Við tryggjum að þú fáir viðeigandi þjálfun, símenntun og aðgang að þekkingu varðandi rekstur gagnavera
- Heilsumiðað hugarfar með markmið um jafnvægi starfs og einkalífs
- Íþróttastyrkur til rækta líkama og sál
- Skemmtinefnd sem heldur stuðinu gangandi
- Veitingaþjónusta send á vinnustaðinn
- Fjarskiptapakki og símastyrkur
- Alþjóðlegur vinnustaður með fjölmenningu
- Tækifæri til þess að ferðast og kynnast öðrum gagnaverum okkar á Norðurlöndunum
Auglýsing birt1. júlí 2026
Umsóknarfrestur12. júlí 2026
Tungumálahæfni
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Fitjar 1, 260 Reykjanesbær
Starfstegund
Hæfni
Mannleg samskiptiRafvirkjunSkipulagÞjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Við leitum að rafvirkja eða rafeindavirkja í samsetningu á rafbúnaði og vogum
JBT Marel

Sérfræðingur í stofnkerfum
Míla hf

Rafvirki - Vélstjóri - Vélvirki
Heitirpottar.is

Hafðu stjórn á straumnum - sérfræðingur stjórnkerfa
Rarik ohf.

Sérfræðingur í iðnstýringum
EFLA hf

TDK Foil Iceland ehf óskar eftir að ráða Rafmagnsverkfræðing
TDK Foil Iceland ehf

Söluráðgjafi rafbúnaðar hjá Johan Rönning í Reykjanesbæ
Johan Rönning

Kennarar við Tækniskólann - raftæknigreinar
Tækniskólinn

Tæknisérfræðingur
Korda

Commissioning Manager
atNorth

Tengdu þig við okkur - rafvirki á Hvolsvelli
Rarik ohf.

Upplýsingatæknisérfræðingur (iðnstýringar)
Alcoa Fjarðaál