
Nespresso á Íslandi
Perroy ehf. er umboðsaðili Nespresso á Íslandi og rekur jafnframt starfsemi Nespresso í Finnlandi. Félagið starfrækir samtals níu starfstöðvar í tveimur löndum – þar af fjórar á Íslandi. Perroy ehf. sinnir rekstri verslana, fyrirtækjaþjónustu, netverslunar og vöruhúss – með skýra sýn á gæði, sjálfbærni og framúrskarandi upplifun viðskiptavina.
Við sameinum hágæða hönnun, snjalla tækni og þægindi til að skapa einstaka kaffiupplifun – dag eftir dag. Vörumerkið Nespresso hefur sett ný viðmið í kaffimenningu heimsins, og við hjá Perroy ehf. tökum þeirri ábyrgð alvarlega – með áherslu á fagmennsku, nýsköpun og sjálfbæra þróun.
Hjá okkur starfar samhentur hópur með skýran metnað til árangurs. Við leggjum áherslu á ábyrgð, fagleg vinnubrögð og skemmtilegt starfsumhverfi – þar sem starfsfólk fær tækifæri til að láta hæfileika sína njóta sín og þróast í takt við verkefnin.

Kaffivélatæknir - viðgerðir, viðhald og þjónusta
Nespresso á Íslandi leitar að kaffivélatækni í fullt starf. Starfið felst í viðgerðum, viðhaldi, þjónustuskoðunum og þjónustu á kaffivélum Nespresso — bæði á verkstæði okkar að Vesturvör 30B í Kópavogi og í þjónustuheimsóknum til viðskiptavina. Viðkomandi verður hluti af öflugri fyrirtækjaþjónustu Nespresso á Íslandi, þar sem framúrskarandi þjónustulund og samskiptahæfni eru lykilatriði.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Viðgerðir og fyrirbyggjandi viðhald á kaffivélum Nespresso
- Bilanagreining, afkölkun og þrif á vélum — á verkstæði og hjá viðskiptavinum
- Uppsetning, gangsetning og kennsla á vélum á vinnustöðum
- Skráning bilana- og viðgerðarkóða og umsjón varahluta
- Samstarf og upplýsingagjöf við Nespresso á Norðurlöndunum
Menntunar- og hæfniskröfur
Fagleg menntun er ekki skilyrði — handlagni, tæknilegt innsæi, áhugi á að skilja hvernig hlutirnir virka og að geta fylgt ferlum og leiðbeiningum um virkni véla.
- Reynsla og þekking á vélum og vélbúnaði — úr námi, starfi eða af eigin áhuga
- Bakgrunnur úr iðnaði er kostur (rafvirki, tæknimaður, vélvirki eða sambærilegt)
- Skipulagshæfni
- Gild ökuréttindi
- Góð íslensku- og enskukunnátta
- Sjálfstæð vinnubrögð, þjónustulund og góð samskiptahæfni
Fríðindi í starfi
Hágæða kaffi
Auglýsing birt15. júlí 2026
Umsóknarfrestur27. júlí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Vesturvör 30B, 200 Kópavogur
Starfstegund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Tæknifólk í hleðsluþjónustu ON
Orka náttúrunnar

Ert þú tæknimaðurinn sem aðrir leita til þegar ekkert virkar?
Örugg afritun

Sérfræðingur í vöruþróun (e. R&D engineer) - Ísafjörður
Kerecis

Tæknimaður með sölu- og þjónustuáhuga.
Ferro Zink hf

Tæknimaður með reynslu
atNorth

Rafvirki / Rafmagnssérfræðingur
atNorth

Car Mechanic
No 22 ehf.

Viðgerðarmaður á Selfossi
Steypustöðin

Söluráðgjafi varahluta
Fastus

Rafvirki
DTE

Enercon óskar eftir að ráða rafvirkja.
ENERCON Iceland ehf.

Stálsmiðir, vélvirkjar - Vélsmiðja
VHE