

Tæknimaður með sölu- og þjónustuáhuga.
Ferro Zink ehf óskar eftir að ráða öflugan starfsmann í framleiðsludeild félagsins.
Starfsmaður þarf að vera tilbúinn að takast á við fjölbreytt, skemmtileg og krefjandi verkefni með góðri liðsheild, þar sem hæfni í mannlegum samskiptum er mikilvæg.
Starfið felst í þjónustu við viðskiptavini á stöðluðum lausnum ásamt sérútfærslum og aðlögunum á framleiðsluvörum fyrirtækisins.
Ferro Zink er bæði innflytjandi á stáli og rekur tvær verslanir og eru þær fagmannaverslanir sem þjónusta iðnað og leggja áherslu á gæðavörur.
Ef þú ert framsækinn og faglegur aðili með gleðina í fyrirrúmi þá erum við að leita að þér.
Sala og tilboðsgerð ásamt verkefnstýringu.
Greining á þörfum viðskiptavina.
Uppbygging og viðhald viðskiptasambanda.
Hönnun, teiknivinna og vöruþróun.
Þáttaka í innkaupa- og ákvarðanaferlum.
Menntun innan véla og stál geirans s.s. verk-, tækni-, vél- eða iðnfræði.
Æskilegt að hafa reynslu í Auto-Cad, Inventor.
Færni og lipurð í mannlegum samskiptum.
Góð íslensku- og enskukunnátta.
Almenn tölvukunnátta nauðsynleg.
Metnað til að ná árangri í starfi.
Frumkvæði.
Niðurgreiddur hádegismatur.
Sveigjanleiki með að fara milli starfsstöðva félagsins.
Íslenska
Enska










