
Terra hf.
Terra er líflegur og fjölbreyttur vinnustaður. Hjá félaginu starfa um 260 einstaklingar á starfsstöðvum á nokkrum stöðum á landinu. Alla daga vinnum við af dugnaði og eljusemi að því að gera góða hluti fyrir umhverfið.
Við veitum fjölbreytta þjónustu á sviði umhverfismála, einkum á sviði úrgangsstjórnunar og endurvinnslu. Frá 1984 hefur Terra lagt áherslu á að þjóna fyrirtækjum, sveitarfélögum og einstaklingum á hagkvæman og umhverfisvænan hátt þar sem tekið er fullt tillit til aðstæðna á hverjum stað og mismunandi þarfa viðskiptavina. Lögð er áhersla á að koma öllum þeim efnum sem falla til í viðeigandi farveg og aftur inn í hringrásarhagkerfið.
Við leggjum mikið upp úr fjölskylduvænu vinnuumhverfi, sterkri liðsheild og jákvæðum og góðum starfsanda. Við erum með öflugt starfsmannafélag sem heldur fjölbreytta viðburði yfir allt árið.

Bifvélavirki/vélvirki
Hefur þú næmt auga og finnst gaman að greina og sinna viðgerðum á bílum og tækjum og langar á sama tíma að vera hluti af kraftmiklu og flottu teymi? Ef þetta kallar á þig, þá hvetjum við þig til að sækja um.
Við erum að leita að metnaðarfullum aðila með framúrskarandi þjónustulund til að hjálpa okkur að halda bílunum okkar og tækjum í toppstandi.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Sinna viðhaldi á bílum og tækjum
- Viðgerðir og bilanagreining á bílum og gámum
- Samskipti og þjónusta við viðskiptavini
- Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun og/eða reynsla við bílaviðgerðir
- Sjálfstæði í vinnubrögðum, metnaður og vandvirkni
- Lausnahugsun, teymishugsun og jákvætt hugarfar
- Góð íslensku – og/eða enskukunnátta
- Almenn tölvukunnátta
- Meirapróf æskilegt
- Lyftararéttindi æskileg
Auglýsing birt18. júní 2026
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Berghella 1, 221 Hafnarfjörður
Starfstegund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Maintenance Technician | Össur
Embla Medical | Össur

Vélvirki/vélstjóri
Vélvirki ehf.

Reykjavík: Car Mechanic / Bifvélavirki - Vélvirki
Íslenska gámafélagið ehf.

Bílaumsjónarmaður
MAX1 | VÉLALAND

Starfsmaður í varahlutaverslun
Automatic ehf

Bifvélavirkjar - Askja Reykjanesbæ
Bílaumboðið Askja

Viðgerðamaður á sleðaverkstæði
Arctic Adventures

Bifvélavirki / Automotive mechanic
Arctic Adventures

Sölufulltrúi véladeild
Fálkinn Ísmar

Vélvirki á vaktir
Norðurál

Ef stór dekk eru ekki vandamál heldur skemmtileg áskorun þá viljum við heyra í þér!
Arctic Trucks Ísland ehf.

Vélvirki – Hólabrúarnáma
Steypustöðin