Terra hf.
Terra hf.
Terra hf.

Meiraprófsbílstjóri - Hafnarfjörður

Við leitum að öflugum, áreiðanlegum og þjónustulunduðum einstaklingi með meiraprófsréttindi til að sinna mikilvægu hlutverki í daglegum rekstri og vinna með öflugu teymi samstarfsfólks í höfuðstöðvum okkar í Hafnarfirði.

Starfið felur í sér akstur og flutninga innan svæðis fyrirtækisins, þar sem unnið er í nánu samstarfi við vélamenn og aðra starfsmenn við tilfærslu, losun og meðhöndlun gáma.
Viðkomandi mun jafnframt sinna þjónustu fyrir aðrar deildir á svæðinu eða utan þess, eftir þörfum.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Akstur, flutningur og losun gáma innan starfssvæðis
  • Samvinna við vélamenn og aðra starfsmenn á svæðinu
  • Þjónusta við aðrar deildir fyrirtækisins
  • Eftirlit með búnaði og öryggi við framkvæmd verkefna
  • Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Meirapróf C, CE er kostur
  • Jákvæðni, þjónustulund og samskiptafærni
  • Skipulagshæfi, lausnahugsun og frumkvæði
  • Íslenskukunnátta er kostur en enskukunnátta skilyrði
Auglýsing birt12. júní 2026
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Berghella 1, 221 Hafnarfjörður
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Meirapróf CPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar