Terra hf.
Terra hf.
Terra hf.

Sérfræðingur í fræðslumálum

Við leitum að metnaðarfullum sérfræðingi sem hefur áhuga á að vinna með fólki, þróa fræðslu og þjálfun og stuðla að góðri starfsupplifun. Ef þú ert jákvæður, drífandi og lausnamiðaður, með auga fyrir góðu skipulagi og hefur gaman af að koma hugmyndum í framkvæmd, þá viljum við heyra frá þér.

Við leitum að öflugum sérfræðingi í fræðslumálum sem vill taka þátt í að efla hæfni, þekkingu og starfsþróun starfsfólks um alla samstæðuna en við erum yfir 300 manns. Starfið er fjölbreytt og áhrifamikið, þar sem þú færð tækifæri til að leiða fræðslumál, þróa nýjar lausnir og taka þátt í áframhaldandi uppbyggingu mannauðsstarfs Terra.

Þú munt starfa á sviði sjálfbærni og menningar og eiga samstarf við stjórnendur og starfsfólk móður- og dótturfélaga Terra. Starfið snýr ekki eingöngu að fræðslu heldur einnig að umbótastarfi, ferlavinnu og verkefnum sem styðja við öfluga starfsmenningu og faglegt starfsumhverfi.

Við nýtum meðal annars fræðslu- og upplýsingakerfið Relesys og erum að innleiða Journeys frá 50skills. Sérfræðingur í fræðslumálum mun gegna lykilhlutverki í þeirri vegferð og hafa tækifæri til að móta hvernig við nálgumst fræðslu, starfsþróun og þekkingarmiðlun til framtíðar.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Ábyrgð á skipulagi og utanumhaldi fræðslu- og þjálfunarmála starfsfólks
  • Þróun, uppsetning og miðlun fræðsluefnis
  • Umsjón með fræðslu- og upplýsingakerfum félagsins
  • Eftirfylgni, greining og miðlun upplýsinga um stöðu fræðslumála
  • Umsóknir og eftirfylgni styrkja úr fræðslusjóðum
  • Stuðningur við mannauðsstjóra í fjölbreyttum mannauðstengdum verkefnum
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi og/eða reynsla af mannauðsmálum, fræðslu eða starfsþróun
  • Brennandi áhuga á fræðslu, þjálfun og þróun fólks
  • Góð hæfni til að miðla þekkingu og leiðbeina öðrum
  • Reynsla af rafrænum fræðslu- og upplýsingakerfum, er kostur
  • Er skipulagður, sjálfstæður og lausnamiðaður í vinnubrögðum
  • Frumkvæði og metnaður til að þróa og bæta verklag
  • Framúrskarandi samskiptafærni og jákvætt viðmót
  • Góð íslensku- og enskukunnáttu, bæði í ræðu og riti
Auglýsing birt4. júní 2026
Umsóknarfrestur14. júní 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Suðurhraun 10, 210 Garðabær
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar