

Teymisleiðtogi í hugbúnaðarþróun
Við leitum að öflugum og metnaðarfullum leiðtoga til að leiða þróunarteymi fjárfestingabankakerfa í krefjandi og fjölbreyttu umhverfi. Í starfinu felst að skapa jákvætt og árangursdrifið vinnuumhverfi, styðja við faglegan vöxt liðsmanna og taka virkan þátt í skipulagningu, forgangsröðun og framkvæmd þróunarverkefna.
Starfið hentar einstaklingi sem hefur bakgrunn í hugbúnaðargerð, sterka leiðtogahæfni, góða yfirsýn yfir þróunarferla og brennur fyrir því að efla teymi, bæta vinnubrögð og tryggja gæði í afhendingu. Einnig felur starfið í sér náið samstarf við hagaðila, viðskiptavini og önnur teymi, ásamt þátttöku í hönnun, skjölun og prófunum.
Við nýtum okkur fyrst og fremst Microsoft tækni, svo sem Azure, .net, C# og SQL Server ásamt Angular eða React í vefþróun.
Til að koma til greina í starfið þarftu að hafa háskóla menntun sem nýtist í starfið, reynslu af leiðtogahlutverki eða verkefnastjórnun í hugbúnaðarþróun eða sambærilegu umhverfi og góða færni í samskiptum, samstarfi og forgangsröðun.
Einnig er mikilvægt að viðkomandi hafi getu til að leiða teymi, byggja upp jákvæða teymismenningu og styðja við starfsþróun ásamt frumkvæði, skipulagshæfni og metnaði til að ná árangri í fjölbreyttu starfsumhverfi.
Við leitum því að einstaklingi sem
-
hefur brennandi áhuga á leiðtogahlutverki og þróun fólks,
-
nær að sameina tæknilega yfirsýn og sterka skipulagshæfni,
-
vinnur vel með ólíkum hagaðilum,
-
hefur bakgrunn í hugbúnaðargerð
Five Degrees á Íslandi
Five Degrees á Íslandi er leiðandi í gerð hugbúnaðar fyrir fjármálamarkað. Hugbúnaðurinn okkar er í notkun hjá flestum fyrirtækjum og stofnunum á íslenskum fjármálamarkaði. Hugbúnaðarlausnir Five Degrees einfalda alla umsýslu lána, verðbréfasafna, innlánsreikninga og greiðslusamninga.
Starfstöðvar á Íslandi eru tvær, í Kópavogi og á Akureyri. Á báðum stöðum er lagður mikill metnaður í gott starfsumhverfi og að verkefnin sem unnin eru séu bæði fjölbreytt og krefjandi.
Nánari upplýsingar veitir Kristín Birna Sævarsdóttir, forstöðumaður hugbúnaðarþróunar, [email protected].
Íslenska










