
Sérfræðingur í Tölvurannsóknadeild
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu (LRH) leitar eftir drífandi og lausnamiðuðum einstaklingi í starf sérfræðings í tölvurannsóknadeild Tæknideildar.
Tölvurannsóknadeild LRH sinnir fjölbreyttum stafrænum réttarrannsóknum fyrir öll lögregluembætti landsins. Deildin rannsakar og tryggir sönnunargögn sem kunna að finnast á hverskonar búnaði sem geyma gögn á stafrænu formi.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu er nútímaleg og framsækin þjónustustofnun sem er til staðar fyrir alla alltaf. Megin áhersla er lögð á jafnrétti, starfsánægju, heilbrigðan starfsanda, traust og gagnsæi í samskiptum og að starfsfólk búi yfir þekkingu og hæfni til að takast á við fjölbreytileg verkefni. Starfsfólk embættisins er um 500 á fjórum megin starfsstöðvum.
Gildi embættis lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu eru TRAUST, FAGMENNSKA og ÖRYGGI.
- Rannsóknir á haldlögðum tölvum, símum og öðrum miðlum sem geta geymt rafræn gögn.
- Stjórnun tölvutengdra rannsókna á brotavettvangi.
- Skýrslugerð vegna rannsókna og vitnisburður fyrir dómi þegar þörf er á.
- Kynna starfsemina innan og utan lögreglu þegar þess er þörf.
- Þátttaka í umbótaverkefnum Tölvurannsóknadeildar og þróun verkferla.
- Tryggja fagleg gæði rannsókna og að málshraði sé í samræmi við markmið
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi t.d. menntun í tölvurannsóknum (Digital forensics) eða sambærilegt.
- Aukin menntun sem nýtist í starfi t.d. meistaranám með tengingu við netbrota-, tölvu- og/eða lögreglurannsóknir er kostur.
- Þekking og reynsla af rannsóknum á tölvum, símum, gagnageymslum og öðrum búnaði sem geyma gögn á rafrænu formi.
- Góð hæfni til að vinna úr stafrænum gögnum og setja fram með skýrum hætti.
- Mjög góð samskiptahæfni, þjónustulund, jákvæðni og sveigjanleiki.
- Skipulagshæfni, nákvæmni, frumkvæði, sjálfstæði í starfi og lausnamiðuð vinnubrögð.
Með umsókn skal fylgja greinargóð ferilskrá yfir menntun og fyrri störf, staðfesting á námi og kynningarbréf þar sem umsækjandi gerir grein fyrir ástæðu umsóknarinnar og rökstyður hæfni sína í starfið.
Íslenska
Enska










