Matarkompani
Matarkompani

Ert þú Tölvusnillingur? 💻

Við hjá Matarkompaní leitum að Tölvusnillingi 💻

Við leitum að öflugum einstaklingi sem hefur sterkan tæknilegan grunn, brennandi áhuga á hugbúnaði og metnað til að byggja upp tækniumhverfi fyrirtækisins til framtíðar.

Þetta er fullt starf þar sem þú berð ábyrgð á þróun, innleiðingu og áframhaldandi uppbyggingu innri tæknilausna ásamt því að leiða tæknilega þróun fyrirtækisins.

Helstu verkefni

  • Þróa og viðhalda innri hugbúnaðarlausnum.

  • Greina og bæta vinnuferla með tæknilegum lausnum.

  • Sjálfvirknivæða endurtekin verkefni.

  • Meta og innleiða nýja tækni þegar hún skapar raunverulegt virði.

  • Sjá um upplýsingatæknimál fyrirtækisins.

  • Vinna með utanaðkomandi forriturum og öðrum tæknisérfræðingum.

Við leitum að einstaklingi sem

  • hefur menntun eða haldgóða reynslu á sviði hugbúnaðar, upplýsingatækni eða skyldra greina.

  • hefur reynslu af hugbúnaðarþróun og tæknilegri lausnamiðun.

  • hugsar sjálfstætt og tekur frumkvæði.

  • hefur sterka greiningarhæfni og nýtur þess að leysa flókin verkefni.

  • hefur metnað til að þróast bæði persónulega og faglega.

  • fylgist með nýrri tækni og hefur gaman af því að læra.

Æskileg þekking

  • Hugbúnaðarþróun.

  • Forritun
  • Gagnagrunnar.

  • API tengingar.

  • GitHub eða sambærileg útgáfustýring.

  • Gervigreind og AI verkfæri.

  • Sjálfvirknivæðing vinnuferla.

  • Google Workspace.

  • Kerfisumsýsla og upplýsingatækni.

Ert þú einstaklingur sem sameinar sterka tæknilega þekkingu, sjálfstæða hugsun og mikla forvitni. Við viljum fá aðila sem getur tekið ábyrgð á tæknilegri þróun fyrirtækisins, komið með nýjar hugmyndir og hjálpað okkur að taka betri tæknilegar ákvarðanir til framtíðar.

Auglýsing birt27. júlí 2026
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Framúrskarandi
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Hlíðasmári 8, 201 Kópavogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar