Byko
Byko
Byko

Aðstoðarverslunarstjóri - BYKO Granda

Við leitum að öflugum, hressum og duglegum leiðtoga til að aðstoða okkur við að stýra þeim frábæra hópi fólks sem vinnur í BYKO Granda. Ef þú ert framsækinn og faglegur einstaklingur með gleðina í fyrirrúmi þá erum við að leita að þér.

Við leitum að starfsmanni með:

  • Áhuga á verslun, sölu og þjónustu
  • Hæfni í mannlegum samskiptum
  • Reynslu af stjórnunar-eða leiðtogastarfi
  • Getu til að vinna undir álagi og taka ákvarðanir
  • Góða skipulagshæfni
  • Góða íslensku- og enskukunnáttu, í ræðu og riti


Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Tryggja framúrskarandi þjónustu og fagleg vinnubrögð starfsfólks
  • Ábyrgð á mönnun verslunar og utanumhaldi með fjarveru í samstarfi við verslunarstjóra
  • Sér til þess að starfsfólk fái viðeigandi fræðslu og þjálfun
  • Ráðningar og önnur mannauðstengd verkefni í samstarfi við verslunarstjóra
  • Miðlar upplýsingum um rekstur verslunar til starfsfólks
  • Ber ábyrgð á vöruframsetningu, verðmerkingum og verðbreytingum
  • Tekur á móti og vinnur úr kvörtunum viðskiptavina
  • Önnur tilfallandi verkefni


Við hvetjum einstaklinga af öllum kynjum og á öllum aldri til að sækja um.


BYKO hefur sett sér þá framtíðarsýn að skapa bestu heildarupplifun viðskiptavina í framkvæmdum og fegrun heimilisins. Í þeirri vinnu höfum við gildin okkar að leiðarljósi; fagmennska, framsækni og gleði.


Allar nánari upplýsingar um starfið veitir Karl Már Lárusson, ([email protected]) verslunarstjóri.

Auglýsing birt4. ágúst 2026
Umsóknarfrestur16. ágúst 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Fiskislóð 2-8, 101 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar