
HLAUPÁR
Hlaupár er sérverslun með hlaupa- og útivistarvörur. Lagt er mikið upp úr góðri og persónulegri þjónustu.

Starf í HLAUPÁR (60-100%)
HLAUPÁR óskar eftir skemmtilegum einstaklingi í hlaupa- og útivistarverslun okkar.
Lykilatriði er að vera með yfirburða þjónustulund og jákvætt viðhorf enda er markmið okkar að veita persónulega og framúrskarandi þjónustu.
Mikill kostur ef viðkomandi stundar eða hefur áhuga á hlaupum og/eða útivist.
Kostur að geta hafið störf sem fyrst. Um er að ræða 60-100% starf.
Vinnutími er alla virka daga kl. 11-16 sem er um 65% starf, eða kl. 11-18 sem er um 90% starf.
Einnig væri hægt að vera einhverja daga til 16 og aðra til 18. Verslunin er einnig opin laugardaga kl. 12-16 og væri hægt að taka einhverja laugardaga ef áhugi er á að auka starfshlutafall.
Umsóknarfrestur út 11. ágúst.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Afgreiðsla í verslun
- Þjónusta og eftirfylgni með viðskiptavinum m.a. í vefverslun
- Taka á móti vörum frá birgjum
- Aðstoða með samfélagsmiðla (kostur en ekki skilyrði)
- Tölvukunnátta er kostur
- Mikill kostur er viðkomandi stundar útivist eða hlaup og hefur áhuga á búnaði
- Önnur verkefni
Auglýsing birt4. ágúst 2026
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Fákafen 11, 108 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Afgreiðslustarf - eingöngu 18 ára og eldri koma til greina
Björnsbakarí

Gleraugnaverslun - framtíðarstarf
PLUSMINUS OPTIC

Við leitum að fólki
Olís ehf.

Aðstoðarverslunarstjóri
KiDS Coolshop

Kjörbúðin Keflavík verslunarstarf
Kjörbúðin

Starfsmaður í verslun The North Face Hafnartorgi
TNF Ísland ehf

Ferskur starfskraftur óskast í áfyllingar
Gosfélagið ehf.

Verkstjóri í frysti og kæligeymslu Aðfanga
Aðföng

Deildarstjóri málningardeildar í Húsasmiðjunni Akureyri
Húsasmiðjan

Framtíðarstarf í timbursölu Húsasmiðjunnar í Borgarnesi
Húsasmiðjan

Borgarnes: Söluráðgjafi í framtíðarstarf
Húsasmiðjan

Aðstoðarverslunarstjóri - BYKO Granda
Byko