

Sviðsstjóri velferðarsviðs Reykjanesbæjar
Reykjanesbær auglýsir laust til umsóknar starf sviðsstjóra velferðarsviðs. Við leitum að öflugum leiðtoga sem hefur yfirgripsmikla þekkingu og reynslu af velferðarmálum ásamt sterkri reynslu af fjármálastjórnun og áætlanagerð. Mikilvægt er að sviðsstjóri hafi skýra sýn á ábyrga ráðstöfun fjármuna, hagkvæman rekstur og árangursríka nýtingu þeirra í þágu íbúa.
Hlutverk velferðarsviðs skv. lögum er að styðja við íbúa með fyrirbyggjandi aðgerðum, aðgerðum sem bæta lífskjör barna, einstaklinga og fjölskyldna, aðgerðum sem stuðla að jöfnuði og jöfnum tækifærum, aðgerðum sem efla færni íbúa til sem mestra lífsgæða og fullrar þátttöku í samfélaginu án mismununar. Áhersla er lögð á sterka framlínuþjónustu, gott samstarf kerfa, samþættingu þjónustu, notendasamráð, virðingu, eldmóð og framsækni í þróun og veitingu þjónustu við íbúa.
Gildi Reykjanesbæjar eru virðing, eldmóður og framsækni og er mikilvægt að viðkomandi endurspegli þau gildi í sínum störfum.
- Ábyrgð á daglegum rekstri og stjórnun sviðsins ásamt mannaforráðum á sviðinu.
- Ábyrgð á fjármálum, þ.m.t. fjárhags- og starfsáætlunum. Ber ábyrgð á að áætlanir fyrir sviðið séu gerðar með tilskyldum hætti og að þeim sé fylgt og þær virtar.
- Greinir og svarar fyrir frávik frá fjárhagsáætlun á fundum bæjarráðs og viðkomandi fagráðs.
- Frumkvæðis- og samræmingarhlutverk hvað varðar öflun og greiningu upplýsinga á sínu málaflokkasviði.
- Ábyrgð á undirbúningi stefnumótunar, þekkingaröflun innan sviðs og þróunarstarfi.
- Vinnur með öðrum stjórnendum Reykjanesbæjar í starfsmanna-, rekstrar- og þjónustumálum.
- Leiðir vinnu við þróun og innleiðingu umbóta á verklagi á sínu sviði og sýnir gott fordæmi á sviði stjórnunar.
- Veitir stjórnendum á sviðinu stuðning við faglega útfærslu verkefna, þ.m.t. við greiningu, samræmingu, lausnarleit og stýringu verkefna.
- Er leiðandi í samvinnu innan stjórnsýslu og utan til að efla heildarsýn, þjónustu við bæjarbúa, faglegar áherslur og hagkvæmni í rekstri
- Ber ábyrgð á að þjónusta sviðsins uppfylli lög, reglugerðir, samþykktir sveitarfélagsins og faglegar gæðakröfur og stuðlar að virku innra eftirliti og stöðugum umbótum.
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi. Framhaldsmenntun nauðsynleg, s.s. félagsráðgjöf.
- Yfirgripsmikil þekking og reynsla af velferðarmálum og opinberri stjórnsýslu.
- Yfirgripsmikil þekking og reynsla af rekstri og mannaforráðum.
- Leiðtogahæfileikar og farsæl stjórnunarreynsla ásamt reynslu af því að leiða breytingar.
- Þekking og reynsla af stefnumótunarvinnu, þjónustustarfsemi og áætlanagerð.
- Framsýni, metnaður, skipulagshæfileikar, sjálfstæð vinnubrögð og geta til að vinna undir álagi.
- Greiningarfærni, lausnamiðuð hugsun, frumkvæði og styrkur í ákvarðanatöku.
- Framúrskarandi færni í mannlegum samskiptum og samstarfi.
- Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti á íslensku og ensku.
- Bókasafnskort.
- Gjaldfrjáls aðgangur að menningarhúsum.
- Gjaldfrjáls aðgangur í sund.
- Gjaldfrjáls aðgangur í strætó.
Íslenska
Enska






