

Sviðsstjóri fjölskyldusviðs
Sveitarfélagið Vogar auglýsir eftir metnaðarfullum einstaklingi til að taka að sér starf sviðsstjóra fjölskyldusviðs hjá sveitarfélaginu. Sviðsstjóri veitir sviðinu faglega, stjórnunarlega og rekstrarlega forystu og starfar í samræmi við stefnu sveitarfélagsins og lög og reglugerðir er varða starfsemina.
Sviðsstjóri gegnir lykilhlutverki í að þróa fjölskyldusvið með áherslu á farsæld barna, öflugt skóla- og frístundastarf, samþætta og notendamiðaða þjónustu og velferð íbúa. Sviðsstjóri er mótandi í starfi sínu, hefur frumkvæði að þróun þjónustunnar og lausn verkefna á málasviði fjölskyldusviðs. Sviðsstjóri er yfirmaður stjórnenda á sviðinu, veitir þeim ráðgjöf og stuðning og hefur yfirumsjón með rekstri þess.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Veita sviðinu faglega, stjórnunarlega og rekstrarlega forystu og ber ábyrgð á starfsemi þess
- Ábyrgð á starfs- og fjárhagsáætlunum fjölskyldusviðs og eftirfylgni þeirra
- Annast faglegan undirbúning og eftirfylgni mála fyrir nefndir á málefnasviði fjölskyldusviðs og hefur yfirsýn yfir málaflokka sviðsins
- Eftirlit með framkvæmd samninga sem eru í gildi og heyra undir sviðið
- Veita stjórnendum á fjölskyldusviði ráðgjöf og stuðning
- Annast samskipti við bæjarstjórn, bæjarráð og fastanefndir sveitarfélagsins á vettvangi málaflokka sviðsins, auk samskipta við önnur sveitarfélög, stofnanir og aðra hagaðila
- Koma að mótun og framfylgir stefnu sveitarfélagsins í skóla-, frístunda-, íþrótta- og velferðarmálum
- Hafa frumkvæði að og stuðlar að umbótaverkefnum á málasviði fjölskyldusviðs
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi
- Meistarapróf sem tengist starfsvettvangi sviðsins er kostur
- Stjórnunarreynsla og leiðtogahæfni
- Reynsla af gerð fjárhagsáætlana og rekstrarstjórnun
- Góð þekking á helstu málaflokkum fjölskyldusviðs
- Reynsla af opinberri stjórnsýslu er kostur
- Rík samstarfs- og samskiptahæfni
- Skipulagsfærni, sjálfstæði í vinnubrögðum og frumkvæði
- Góð íslensku- og enskukunnátta og hæfni til að tjá sig í ræðu og riti
- Góð almenn tölvukunnátta og færni í notkun upplýsingatækni
- Metnaður og hæfni til að leiða umbætur og ná árangri í starfi
Auglýsing birt31. júlí 2026
Umsóknarfrestur14. ágúst 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Iðndalur 2, 190 Vogar
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Frístundaráðgjafar/leiðbeinendur
Kringlumýri frístundamiðstöð

Skóla- og frístundaliði - Skarðshlíðarskóli
Hafnarfjarðarbær

Deildarstjóri óskast á Kópastein
Kópasteinn

Starfsfólk óskast í búsetuúrræði Vopnabúrsins
Vopnabúrið

Leikskólakennari skólaárið 2026-2027
Baugur

Leikskólasérkennari / Þroskaþjálfi
Baugur

Leikskólakennarar og annað starfsfólk óskast í Krikaskóla
Krikaskóli

Starf í skóla og frístund Smáraskóla
Smáraskóli

Deildarstjóri
Heilsuleikskólinn Urriðaból I

Deildarstjóri óskast til starfa
Leikskólinn Blásalir

Sérkennsla í Blásölum
Leikskólinn Blásalir

Leikskólakennari/leiðbeinandi óskast til starfa
Leikskólinn Blásalir