
Eimskip
Hlutverk Eimskips er að veita áreiðanlegar heildarlausnir í flutningum á sjálfbæran hátt með árangur viðskiptavina að leiðarljósi. Við höfum verið traustur samstarfsaðili í alþjóðlegum flutningum frá árinu 1914 og rekum 56 skrifstofur í 20 löndum með um 1.700 starfsmönnum. Við tryggjum viðskiptavinum okkar áreiðanlegar heildarlausnir í flutningum meðal annars með áætlunarsiglingum og rekstri gáma- og frystiskipa í Norður-Atlantshafi, hafnarþjónustu, landflutningum, vöruhúsa- og frystigeymsluþjónustu og alþjóðlegu skrifstofuneti í flutningsmiðlun.
Hjá Eimskip er lögð sérstök áhersla á að skapa jákvæða menningu með sterkri liðsheild, tækifærum til þróunar, hvatningu til að sýna frumkvæði, opnum skoðanaskiptum og góðri miðlun upplýsinga.

Rafvirki, rafeindavirki eða rafvélavirki óskast á rafmagnsverkstæði
Rafmagnsverkstæði Eimskips í Sundahöfn leitar að öflugum rafvirkja, rafeindavirkja eða rafvélavirkja í framtíðarstarf.
Við bjóðum upp á fjölbreytt og krefjandi verkefni í fyrsta flokks vinnuaðstöðu þar sem fagmennska og öryggi eru í forgrunni. Verkstæðið er hluti af samheldnu teymi sem vinnur að viðhaldi og uppbyggingu tækja og búnaðar sem styður við alþjóðlega flutningsstarfsemi Eimskips.
Ef þú hefur áhuga á tæknilegum lausnum, vinnur af nákvæmni og átt auðvelt með að vinna í hóp – þá viljum við heyra frá þér!
Um fullt starf er að ræða. Unnið er mánudaga til fimmtudaga frá kl. 07:00 - 16:00 og til kl. 15:00 á föstudögum.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Almenn raflagnavinna, viðhald og nýlagnir
- Viðhald tækja og búnaðar
- Uppsetning og endurbætur á rafbúnaði
- Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
- Sveinspróf í rafvirkjun, rafeindavirkjun eða rafvélavirkjun
- Reynsla af viðgerðum á lyfturum og frystikerfum er kostur
- Reynsla af stýrisbúnaði og raflögnum er kostur
- Góð kunnátta í íslensku skilyrði.
- Góð þjónustulund og jákvæðni
Auglýsing birt7. september 2026
Umsóknarfrestur21. september 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Sundabakki 2, 104 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
JákvæðniRafvirkjunÞjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (12)

Starfsmaður í bílarèttingu
Réttverk ehf.

Sérfræðingur í hleðslulausnum
HS Orka

Bifvélavirki - Peugeot
Peugeot á Íslandi | Brimborg

Johan Rönning, Akureyri leitar að öflugum söluráðgjafa
Johan Rönning

Starfsmaður á verkstæði
Airport Associates

Rekstrarstjóri Tækjaverkstæðis - Keflavíkurflugvöllur
Icelandair

Laghentur viðgerðarmaður
Stjörnugrís hf.

Sandblástur, málun og viðgerðir
Tæki.is

Viðgerðarmaður á verkstæði
Tæki.is

Field Service Specialist (Service, Build & Enablement)
DTE

Tæknimaður óskast til starfa hjá Freyju
Freyja

Hefur þú reynslu af vinnuvélum og tækjum og vilt vinna á skemmtilegum vinnustað
Vinnueftirlitið