
Eimskip
Hlutverk Eimskips er að veita áreiðanlegar heildarlausnir í flutningum á sjálfbæran hátt með árangur viðskiptavina að leiðarljósi. Við höfum verið traustur samstarfsaðili í alþjóðlegum flutningum frá árinu 1914 og rekum 56 skrifstofur í 20 löndum með um 1.700 starfsmönnum. Við tryggjum viðskiptavinum okkar áreiðanlegar heildarlausnir í flutningum meðal annars með áætlunarsiglingum og rekstri gáma- og frystiskipa í Norður-Atlantshafi, hafnarþjónustu, landflutningum, vöruhúsa- og frystigeymsluþjónustu og alþjóðlegu skrifstofuneti í flutningsmiðlun.
Hjá Eimskip er lögð sérstök áhersla á að skapa jákvæða menningu með sterkri liðsheild, tækifærum til þróunar, hvatningu til að sýna frumkvæði, opnum skoðanaskiptum og góðri miðlun upplýsinga.

Meiraprófsbílstjóri í Reykjavík á kvöldvakt
Eimskip innanlands leitar að ábyrgum og þjónustuliprum meiraprófsbílstjóra með CE réttindi í framtíðarstarf á kvöldvakt. Unnið er alla virka daga frá kl.16:00-24:00.
Um er að ræða starf við vörudreifingu á höfuðborgarsvæðinu, lestun og losun, sem og samskipti við viðskiptavini og samstarfsfólk. Viðkomandi þarf að vera stundvís, skipulagður í vinnubrögðum og búa yfir framúrskarandi þjónustulund. Við bjóðum upp á fjölbreytt og krefjandi verkefni í fyrsta flokks vinnuaðstöðu þar sem fagmennska og öryggi eru í forgrunni.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Vörudreifing í Reykjavík og nágrenni
- Lestun og losun hjá viðskiptavinum
- Jákvæð samskipti og framúrskarandi þjónusta til viðskiptavina
- Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
- Meirapófa CE er skilyrði
- Réttindi til aksturs í atvinnuskyni er skilyrði
- Lyftararéttindi er kostur
- ADR réttindi er kostur
- Góð íslensku og/eða ensku kunnátta
- Geta til að vinna undir álagi
- Framúrskarandi þjónustulund og jákvætt viðmót
- Hæfni í mannlegum samskiptum og sjálfstæð vinnubrögð
Fríðindi í starfi
- Aðgang að öflugu starfsmannafélagi sem m.a. rekur frábær orlofshús um allt land.
- Heilsu- og hamingjupakka sem inniheldur samgöngustyrk og styrki fyrir líkamsrækt, sálfræðiþjónustu og fleira.
- Nýjan og vel útbúin flutningabíl
Auglýsing birt2. september 2026
Umsóknarfrestur16. september 2026
Tungumálahæfni
EnskaNauðsyn
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Sundabakki 2, 104 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
JákvæðniÖkuréttindiSamviskusemiÞjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (12)

Starfsmaður í fraktmiðstöð / Cargo department employee
Airport Associates

Blönduós - Starfsmaður í afgreiðslu og dreifingu
Pósturinn

Meiraprófbílstjóri óskast framtíðarstarf
Jarðtækni

Bílstjóri á Bílaflutningabíl
Go Leiga

Reykjavík: Meiraprófsbílstjóri á dælubíl - Stífludeild
Íslenska gámafélagið ehf.

Meiraprófsbílstjóri með reynslu / CE driver with experience - Einingaverksmiðjan
Einingaverksmiðjan

Hlutastörf í hlaðdeild á Keflavíkurflugvelli
Airport Associates

Bílstjóri með meirapróf óskast í dagdvöl Sunnuhlíðar
Sunnuhlíð

Akureyri - Olíubílstjóri
Skeljungur ehf

Akstur & standsetningar LEAPMOTOR/JEEP/RAM/FIAT umboðið
ÍSBAND (Íslensk-Bandaríska ehf)

Meiraprófsbílstjóri á Selfossi
Samskip

Vöruhús / lager
Icetransport