
Við leitum að nýju fólki í hópinn!
ÓJ&K–ÍSAM leitar að kraftmiklu og jákvæðu fólki til starfa á Korputorgi.
Við erum með nokkur störf í boði:
- Bílstjóri með B-réttindi í fullt starf
- Bílstjóri með C-réttindi í fullt starf
- Starfsmaður í vöruhús í fullt starf
- Starfsmaður í vöruhús í hlutastarf
Við leitum að áreiðanlegum og sjálfstæðum liðsmönnum sem eru tilbúnir að leggja sitt af mörkum í öflugu og líflegu starfsumhverfi.
Bílstjórar
Vinnutími er frá kl. 08:00–16:00 mánudaga til fimmtudaga en föstudagar eru styttri.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Umsýsla, útkeyrsla og afhending vara
- Góð og fagleg samskipti við viðskiptavini og samstarfsfólk
- Ýmis tilfallandi verkefni í vöruhúsi
Við leitum annars vegar að bílstjóra með gild B-réttindi og hins vegar að bílstjóra með gild C-réttindi.
Störf í vöruhúsi
Fullt starf
Vinnutími skiptist á milli tveggja vinnutímabila, annars vegar frá kl. 07:00–15:00 og hins vegar frá kl. 10:00–18:00. Unnið er á hvoru tímabili í eina viku í senn. Til kemur stytting vinnuvikunnar annan hvern föstudag.
Hlutastarf
Um er að ræða sveigjanlegt hlutastarf, aðallega fyrripart vikunnar. Gert er ráð fyrir 4–8 klukkustundum á dag, en nánar verður samið um vinnufyrirkomulag og fjölda daga við viðkomandi. Starfið gæti hentað vel með námi.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Tínsla og afgreiðsla pantana
- Móttaka vara
- Almenn lagerstörf
- Önnur tilfallandi verkefni í vöruhúsi
Lyftararéttindi eru kostur en ekki skilyrði.
Við leitum að þér ef þú:
- Ert stundvís, jákvæð/ur og áreiðanleg/ur
- Býrð yfir góðri samskiptafærni og þjónustulund
- Sýnir sjálfstæði og lipurð í vinnubrögðum
- Ert sveigjanleg/ur og tilbúin/n að takast á við fjölbreytt verkefni
- Býrð yfir almennu hreysti
- Talar annaðhvort íslensku eða ensku
Hljómar þetta eins og starf fyrir þig? Sendu okkur umsókn og taktu fram hvaða starf og starfshlutfall þú hefur áhuga á. Við hlökkum til að heyra frá þér!
Enska










