

Lagerstjóri
Viltu taka þátt í öflugu teymi þar sem þjónusta, skipulag og fagmennska eru í fyrirrúmi?
Við leitum að öflugum og lausnamiðuðum Lagerstjóra til að leiða dagleg verkefni lagers og tryggja framúrskarandi þjónustu við innri og ytri viðskiptavini. Um er að ræða fjölbreytt starf þar sem reynir á skipulagshæfni, frumkvæði og góða samskiptahæfni.
Helstu verkefni
· Skipulag og úthlutun verkefna innan lagers
· Vöruafgreiðsla til innri og ytri viðskiptavina
· Móttaka vara frá innlendum og erlendum birgjum
· Skráning og meðhöndlun innkaupareikninga
· Merking og skráning vara á lager
· Afgreiðsla vörusendinga, pósts og pantana úr vefverslun
· Vörutalningar og eftirlit með lagerstöðu
· Reikningagerð og kassauppgjör
· Viðhald á snyrtilegu og skipulögðu lagerumhverfi
· Önnur tilfallandi verkefni
Við leitum að einstaklingi sem
· Hefur reynslu af lagerstörfum eða sambærilegum verkefnum
· Hefur góða tölvukunnáttu og vald á íslensku
· Er skipulagður, nákvæmur og sjálfstæður í vinnubrögðum
· Á auðvelt með mannleg samskipti og þjónustulund
· Getur tekið skjótar og yfirvegaðar ákvarðanir
· Er lausnamiðaður og árangursdrifinn
· Getur unnið vel undir álagi og klárað verkefni af ábyrgð
Menntun og reynsla
· Stúdentspróf eða iðnmenntun er kostur
· Lyftarapróf er æskilegt
· Reynsla af almennum skrifstofustörfum er nauðsynleg
· Reynsla af lagerstörfum er æskileg
· Þekking á Microsoft Office og sambærilegum kerfum er kostur
Við bjóðum
· Ábyrgt og fjölbreytt starf í góðu starfsumhverfi
· Tækifæri til að hafa áhrif á þróun og verklag lagers
· Samheldið teymi og jákvæða vinnustaðamenningu
· Starf hjá fyrirtæki þar sem forysta, umhyggja og traust eru leiðarljós í þjónustu og samskiptum
Íslenska
Enska










