
Eimskip
Hlutverk Eimskips er að veita áreiðanlegar heildarlausnir í flutningum á sjálfbæran hátt með árangur viðskiptavina að leiðarljósi. Við höfum verið traustur samstarfsaðili í alþjóðlegum flutningum frá árinu 1914 og rekum 56 skrifstofur í 20 löndum með um 1.700 starfsmönnum. Við tryggjum viðskiptavinum okkar áreiðanlegar heildarlausnir í flutningum meðal annars með áætlunarsiglingum og rekstri gáma- og frystiskipa í Norður-Atlantshafi, hafnarþjónustu, landflutningum, vöruhúsa- og frystigeymsluþjónustu og alþjóðlegu skrifstofuneti í flutningsmiðlun.
Hjá Eimskip er lögð sérstök áhersla á að skapa jákvæða menningu með sterkri liðsheild, tækifærum til þróunar, hvatningu til að sýna frumkvæði, opnum skoðanaskiptum og góðri miðlun upplýsinga.

Forstöðumaður öryggis- og forvarnamála – Eimskip
Viltu leiða öryggis- og forvarnamál í einu fjölbreyttasta rekstrarumhverfi landsins?
Eimskip leitar að metnaðarfullum einstaklingi með víðtæka þekkingu og reynslu á sviði öryggis- og vinnuverndarmála. Viðkomandi þarf að hafa hæfni til að fá fólk með sér, leiða umbætur og efla öryggismenningu félagsins.
Um er að ræða lykilstarf með víðtæka ábyrgð á stefnumótun, framkvæmd og eftirfylgni öryggis-, vinnuverndar- og forvarnamála félagsins þvert á starfsemina. Starfið spannar fjölbreytt alþjóðlegt rekstrarumhverfi og felur í sér náið samstarf við stjórnendur og starfsfólk.
Starfið heyrir undir framkvæmdastjóra Rekstrarsviðs.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Heildarábyrgð á öryggis-, vinnuverndar- og forvarnamálum félagsins
- Rekstur og þróun öryggisdeildar
- Leiða áhættumat, greiningu slysa, frávika og eftirfylgni úrbóta
- Tryggja að starfsemin uppfylli lög, reglur og viðeigandi staðla
- Veita stjórnendum ráðgjöf og stuðning í öryggis-, vinnuverndar- og forvarnamálum
- Ábyrgð á öryggisstjórnunarkerfum félagsins
- Yfirumsjón með tjónavinnslu og samskiptum við hagaðila innan og utan félagsins
- Ábyrgð á fræðslu, þjálfun og vitundarvakningu á sviði öryggis og forvarna
Menntunar- og hæfniskröfur
- Reynslu af öryggis-, vinnuverndar- eða forvarnastarfi
- Reynslu af stjórnun og verkefnastýringu
- Framúrskarandi leiðtogahæfileika og sterka samskiptahæfni
- Hæfni til að fá fólk með sér og leiða breytingar sem skila árangri
- Sterkan rekstrarskilning og hæfni til að tengja stefnu og framkvæmd
- Öfluga greiningarhæfni og getu til að ná yfirsýn yfir flókið rekstrarumhverfi
- Frumkvæði, sjálfstæði og drifkraft
- Mjög góða færni í íslensku og ensku, í ræðu og riti
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi
Fríðindi í starfi
- Heitur matur í hádeginu, fjölbreytt verkefni og góður starfsandi í samhentu teymi.
- Aðgangur að öflugu starfsmannafélagi sem m.a. rekur frábær orlofshús um allt land
- Heilsu- og hamingjupakki sem inniheldur samgöngustyrk og styrki fyrir líkamsrækt, sálfræðiþjónustu og fleira.
Auglýsing birt2. september 2026
Umsóknarfrestur20. september 2026
Tungumálahæfni
EnskaNauðsyn
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Sundabakki 2, 104 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
FrumkvæðiLeiðtogahæfniSjálfstæð vinnubrögðÞjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (3)




