

Bifreiðasmiður á bílaverkstæði Hölds á Akureyri
Við leitum að bifreiðasmiði eða einstaklingi með góða reynslu úr faginu til að bætast í öflugan hóp starfsfólks á bílaverkstæði Hölds á Akureyri.
Bílaverkstæði Hölds sinnir bæði almennum bílaviðgerðum og tjónaviðgerðum.
Verkstæðið er staðsett í rúmgóðu húsnæði að Þórsstíg 4 á Akureyri. Þar starfa rúmlega 30 starfsmenn með fjölbreytta þekkingu og reynslu á sviði bíla- og tjónaviðgerða.
Á verkstæðinu starfa rúmlega 30 starfsmenn.
- Útlitsviðgerðir
- Viðgerðir á burðarvirki bifreiða
- Rúðuskipti
- Plastviðgerðir
- Sveinspróf í bifreiðasmíði eða reynsla úr faginu
- Bílpróf
- Góð samskiptahæfni og þjónustulund
- Frumkvæði og sjálfstæði í starfi
- Vandvirk og fagleg vinnubrögð
Höldur ehf., rekur m.a. Bílaleigu Akureyrar, stærstu bílaleigu landsins ásamt því að reka almenna bílaþjónustu á Akureyri þ.e. hjólbarðaverkstæði, bílaverkstæði og bílasölu.
Höldur kappkostar að vera framúrskarandi vinnustaður þar sem umhyggja er borin fyrir sérhverjum starfsmanni. Með áherslu á gleði, jafnrétti, gott starfsumhverfi, starfsþróun og góða fyrirtækjamenningu er skapaður eftirsóknarverður vinnustaður.
Íslenska
Enska










