

Bifvélavirki á bílaverkstæði Hölds á Akureyri
Höldur óskar eftir að ráða bifvélavirkja á bílaverkstæði fyrirtækisins að Þórsstíg 4 á Akureyri.
Bílaverkstæði Hölds er viðurkenndur viðgerðar- og þjónustuaðili fyrir bílaumboðin Heklu, Öskju, Suzuki og Vatt og annast jafnframt viðgerðir á öðrum tegundum bíla.
Auk almennra viðgerða sinnir verkstæðið tjónaviðgerðum. Verkstæðið er útbúið góðum tækjakosti og er aðbúnaður allur til fyrirmyndar.
Á verkstæðinu starfa rúmlega 30 starfsmenn.
- Almenn viðhalds- og viðgerðarvinna á bílum
- Bilanagreiningar
- Þjónustuskoðanir
- Sveinspróf í bifvélavirkjun og reynsla af viðgerðum
- Bílpróf
- Góð samskiptahæfni og þjónustulund
- Frumkvæði og sjálfstæði í starfi
- Vandvirk og fagleg vinnubrögð
Höldur ehf., rekur m.a. Bílaleigu Akureyrar, stærstu bílaleigu landsins ásamt því að reka almenna bílaþjónustu á Akureyri þ.e. hjólbarðaverkstæði, bílaverkstæði og bílasölu.
Höldur kappkostar að vera framúrskarandi vinnustaður þar sem umhyggja er borin fyrir sérhverjum starfsmanni. Með áherslu á gleði, jafnrétti, gott starfsumhverfi, starfsþróun og góða fyrirtækjamenningu er skapaður eftirsóknarverður vinnustaður.
Íslenska
Enska










