Malbikstöðin
Malbikstöðin
Malbikstöðin

Starfsmaður á verkstæði

Malbikstöðin óskar eftir að ráða öflugan og lausnamiðaðan einstakling til starfa á verkstæði. Viðkomandi mun sinna fjölbreyttum verkefnum við viðgerðir og viðhald á vinnuvélum, bifreiðum og öðrum tækjabúnaði fyrirtækisins auk viðhalds á malbikunarstöð. Leitað er að einstaklingi sem hefur góða verklega færni, getur unnið sjálfstætt og hefur áhuga á vélum og tækjum.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Almennar viðgerðir og viðhald á vinnuvélum, bifreiðum og tækjum
  • Viðhaldsvinna á malbikunarstöð
  • Bilanagreining og úrlausn verkefna
  • Suðuvinna
  • Fyrirbyggjandi viðhald á vélum og búnaði
  • Umsjón með verkfærum og vinnuaðstöðu
  • Innkaup og útréttingar á varahlutum eftir þörfum
  • Önnur tilfallandi verkefni á verkstæði

Hæfniskröfur

  • Reynsla af viðgerðum á bifreiðum og/eða vinnuvélum
  • Almenn ökuréttindi
  • Aukin ökuréttindi og vinnuvélaréttindi eru kostur
  • Iðnmenntun í bifvélavirkjun og/eða vélvirkjun er kostur
  • Kunnátta í suðu er kostur
  • Góð rafmagns- og tölvukunnátta er kostur
  • Sjálfstæð, skipulögð og örugg vinnubrögð
  • Jákvætt viðhorf og vilji til að læra nýja hluti
  • Frumkvæði og hæfni til að leysa fjölbreytt verkefni

Fríðindi í starfi

  • Líkamsræktarstyrkur
  • Vinnufatnaður
  • Hádegismatur

Um Malbikstöðina

Malbikstöðin var stofnuð árið 2004. Félagið hefur vaxið og dafnað vel frá stofnun þess en á árinu 2020 var reist ný framleiðslustöð fyrir malbik með áherslu á umhverfisvæna framleiðslu og endurvinnslu malbiks. Hjá fyrirtækinu starfa í dag um 60 manns við hin ýmsu störf. Félagið rekur tvö verkstæði, rannsóknarstofu, malbikshópa, fræshópa, malbiksframleiðslu, gæða- og umhverfiseftirlit, flotastýringu og skrifstofu. Nánari upplýsingar um Malbikstöðina má sjá á heimasíðu félagsins www.malbikstodin.is

Umsóknarfrestur er til og með 7. september 2026. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.isog þarf henni að fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Áhugasamir aðilar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um starfið. Farið verður með allar umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál og þeim svarað að ráðningu lokinni.

Nánari upplýsingar veita Lovísa Kristín Þórðardóttir ([email protected]) og Sigríður Svava Sandholt ([email protected]) í síma 511-1225.

Auglýsing birt19. ágúst 2026
Umsóknarfrestur7. september 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Koparslétta 2
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.BifvélavirkjunPathCreated with Sketch.BílvélaviðgerðirPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.LogsuðaPathCreated with Sketch.ÖkuréttindiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.Skipulag
Starfsgreinar
Starfsmerkingar