Isavia / Keflavíkurflugvöllur
Isavia / Keflavíkurflugvöllur
Isavia / Keflavíkurflugvöllur

Spennandi tækifæri fyrir bifvéla- eða vélvirkja

Langar þig að vinna með einn öflugasta tækjaflota landsins á spennandi og góðum vinnustað?

Isavia leitar að jákvæðum og lausnamiðuðum bifvélavirkja eða vélvirkja til liðs við vélaverkstæði Keflavíkurflugvallar. Vélaverkstæðið er staðsett í þjónustuhúsi Isavia á Eystrahlaði þar sem öflugt teymi sinnir fjölbreyttum, krefjandi og skemmtilegum verkefnum á hverjum degi. Starfið býður upp á tækifæri til að vinna með sérhæfðan tækjabúnað í lifandi og spennandi umhverfi og gegna mikilvægu hlutverki í daglegum rekstri flugvallarins.

Helstu verkefni

  • Viðgerðir, viðhald og eftirlit með bílum, vélum og tækjum flugvallarins
  • Skráningar og eftirfylgni í viðhaldskerfum
  • Rennismíði, málmsmíði, suðuvinna og nýsmíði eftir þörfum
  • Þátttaka í vetrarþjónustu, meðal annars snjóruðningi og hálkuvörnum
  • Önnur fjölbreytt verkefni sem tengjast rekstri og uppbyggingu flugvallarins

Menntunar- og hæfnikröfur

  • Meirapróf er skilyrði
  • Menntun í bifvélavirkjun, vélvirkjun eða annarri sambærilegri menntun sem nýtist í starfi
  • Reynsla af viðgerðum og viðhaldi ökutækja, vinnuvéla eða stærri tækja
  • Góð þekking á vél-, rafmagns-, vökva- og/eða tölvukerfum
  • Góð íslensku- og enskukunnátta
  • Sjálfstæði í vinnubrögðum og góðir samstarfshæfileikar
  • Vinnuvélaréttindi er kostur

Starfsstöð er á Keflavíkurflugvelli og bjóðum við upp á rútuferðir milli höfuðborgarsvæðisins og flugvallarins fyrir starfsfólk Isavia.

Isavia er vinnustaður þar sem við sýnum hvert öðru virðingu og erum heiðarleg gagnvart sjálfum okkur og öðrum. Við gætum þess að viðhalda gleðinni, erum hugrökk, uppbyggileg og tökum ábyrgð á eigin frammistöðu. Saman náum við árangri.

Við bjóðum upp á hollan og góðan mat í mötuneytum okkar og allt starfsfólk hefur aðgang að heilsu- og líkamsræktarstöðvum sér að kostnaðarlausu.

Umsóknarfrestur er til og með 24. ágúst 2026.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Kristján Karl Meekosha verkstæðisformaður í gegnum netfangið [email protected].

Umsóknum skal fylgja ferilskrá ásamt kynningarbréfi með rökstuðningi um hæfni viðkomandi í starfið.

Við hvetjum áhugasama aðila, án tillits til kyns og uppruna, til að sækja um.

Auglýsing birt10. ágúst 2026
Umsóknarfrestur24. ágúst 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Keflavíkurflugvöllur, 235 Reykjanesbær
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.HeiðarleikiPathCreated with Sketch.Hreint sakavottorðPathCreated with Sketch.ÖkuréttindiPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögð
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar