Vegagerðin
Vegagerðin
Vegagerðin

Starfsmaður á vélaverkstæði Reyðarfirði

Leitum að starfsmanni á vélaverkstæði á Reyðarfirði. Starfið er fjölbreytt og felur í sér viðhald, eftirlit og þjónustu við ýmiss konar vélar, tæki og búnað.
Styttri ferðir innan Austursvæðis tilheyra starfinu og því er mikilvægt að viðkomandi sé tilbúinn að takast á við fjölbreytt verkefni, bæði á verkstæði og úti á starfsstöðvum. Við hvetjum einstaklinga með góða verklega og tæknilega færni til að sækja um.
Vegagerðin á Austursvæði nær frá Gígjukvísl á Skeiðarársandi að Sandvíkurheiði í Vopnafirði og rekur þjónustustöðvar í Fellabæ, á Reyðarfirði og á Höfn í Hornafirði, ásamt vélaverkstæði á svæðismiðstöð á Reyðarfirði.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Þjónusta við vélar, tæki og búnað á þjónustustöðvum á Austursvæði.
  • Viðhald og eftirlit með bílum, búnaði og tækjum Vegagerðarinnar.
  • Uppsetning og viðhald á vegbúnaði og mælitækjum.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Verkleg og/eða tæknileg færni sem nýtist í starfi.
  • Reynsla af viðhaldi, viðgerðum á vélum ökutækjum eða öðrum tæknilegum búnaði.
  • Vélvirki, bifélavirki eða önnur iðnmenntun sem nýtist í starfi er kostur.
  • Vinnuvélaréttindi, æskileg.
  • Góð hæfni í mannlegum samskiptum.
  • Frumkvæði, sjálfstæði og hæfni að vinna í teymi.
  • Gott vald á íslensku og ensku.
  • Góð öryggisvitund.
  • Hæfni til að nota tölvur og stafrænar lausnir í starfi.
Auglýsing birt7. ágúst 2026
Umsóknarfrestur31. ágúst 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Búðareyri 11, 730 Reyðarfjörður
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar