
Sjóvá
Sjóvá leitast við að vera eftirsóknarverður vinnustaður sem laðar að sér metnaðarfullt og hæft starfsfólk og skapar starfsmönnum tækifæri til að eflast og þróast í starfi.
Hjá okkur starfa um 200 manns, þar af um 170 í höfuðstöðvum okkar í Kringlunni 5 en Sjóvá er með útibú víðsvegar um landið. Meðalstarfsaldur er 10 ár og margir búa að langri og víðtækri starfsreynslu meðan aðrir eru að hefja sinn starfsferil með okkur.
Fyrirtækjamenning okkar einkennist af mikilli þjónustulund, fagmennsku og samheldni, í bland við keppnisskap og vináttu. Við leggjum áherslu á góð samskipti við viðskiptavini og hvert annað og höfum vegvísana okkar Við sýnum umhyggju, við byggjum á þekkingu, við erum kvik og við einföldum hlutina sem okkar leiðarljós í öllum samskiptum.

Spennandi starf í ökutækjatjónum
Við leitum að öflugum aðila til að sinna krefjandi og fjölbreyttu starfi í ökutækjatjónum. Hjá Sjóvá starfar samstilltur hópur fólks sem leggur metnað í að veita viðskiptavinum framúrskarandi þjónustu
Helstu verkefni og ábyrgð
- samskipti við viðskiptavini og þjónustuaðila
- vettvangsúttektir og eftirlit með tjónum og viðgerðum á ökutækjum
- mat á orsökum, umfangi og eðli tjóna
- eftirfylgni með viðgerðum og kostnaði
Menntunar- og hæfniskröfur
- tækni- eða iðnmenntun til dæmis á sviði bílgreina, málmiðna eða rafiðna eða sambærileg reynsla sem nýtist í starfi
- góð greiningarhæfni og lipurð í samskiptum
- sjálfstæð, skipulögð og vönduð vinnubrögð
- góð tölvukunnátta
- reynsla af úttektum eða eftirliti er kostur
Auglýsing birt28. júlí 2026
Umsóknarfrestur12. ágúst 2026
Tungumálahæfni
EnskaNauðsyn
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Kringlan 5, 103 Reykjavík
Starfstegund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (12)

Tæknimaður á verkstæði / Raftæki
Raftækjaverkstæðið

Rafvirki
Raflagnameistarinn ehf.

Enercon óskar eftir að ráða rafvirkja.
ENERCON Iceland ehf.

Umsjónarmaður fasteigna
Veðurstofa Íslands

Tæknimaður hjá Íslandsspilum
Íslandsspil sf.

Tæknimaður,viðgerðir,þjónusta Elevator/Installer/Technician
Íslandslyftur ehf

Rafvirki
Raf-X

Tæknimaður – Fastus Akureyri
Fastus

Senior Mechanic - Campervan Workshop Manager
Indie Campers

Rafvirki
Rafbraut ehf

Vélvirki / Vélstjóri - þjónustudeild
Fálkinn Ísmar

Mechanic / Bifvélavirki
Campeasy