Isavia / Keflavíkurflugvöllur
Isavia / Keflavíkurflugvöllur
Isavia / Keflavíkurflugvöllur

Námsbrautarstjóri

Vilt þú leiða þróun flugverndarþjálfunar hjá Isavia?

Isaviaskólinn leitar að metnaðarfullum námsbrautarstjóra flugverndarbrautar sem vill leiða þróun flugverndarþjálfunar á flugvöllum Isavia. Um er að ræða fjölbreytt leiðtogahlutverk þar sem þú stýrir fjögurra manna teymi og vinnur náið með stjórnendum, sérfræðingum og leiðbeinendum í fyrirtækinu.

Isaviaskólinn er þekkingarmiðstöð Isavia og gegnir lykilhlutverki í að efla hæfni og fagmennsku starfsfólks. Sem námsbrautarstjóri berð þú ábyrgð á að flugverndarþjálfun uppfylli lögbundnar kröfur, sé fagleg og samræmd og styðji við öruggan rekstur. Starfið býður upp á einstakt tækifæri til að hafa raunveruleg áhrif á hæfni starfsfólks og öryggismenningu Isavia.

Helstu verkefni

  • Leiða og þróa starf flugverndarbrautar
  • Skipuleggja, samræma og hafa yfirumsjón með þjálfun og fræðslu á sviði flugverndar
  • Setja markmið, vinna áætlanir og fylgjast með árangri og gæðum þjálfunar
  • Þróa og viðhalda þjálfunaráætlunum, námskrám, kennsluáætlunum og námsefni
  • Sjá um þróun og innleiðingu stafrænna lausna í fræðslu og þjálfun
  • Hafa yfirumsjón með skráningu, utanumhaldi og eftirfylgni þjálfunar
  • Veita stjórnendum og starfsfólki ráðgjöf og þjónustu í málefnum tengdum þjálfun og hæfni
  • Tryggja að kennsluaðstaða, kennslugögn og tæki uppfylli þarfir starfseminnar
  • Leiða verkefni og styðja við stöðuga þróun og nýsköpun innan Isaviaskólans

Hæfniskröfur

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi
  • Reynsla af verkefna- og/eða breytingastjórnun
  • Þekking og reynsla af skipulagningu fræðslu og þjálfunar
  • Hæfni til að þróa og miðla námsefni, þar á meðal stafrænu námsefni
  • Leiðtogahæfni og reynsla af því að leiða teymi er kostur
  • Þekking eða reynsla af flugvernd er kostur
  • Mjög góð íslensku- og enskukunnátta, í ræðu og riti
  • Góð stafræn hæfni og áhugi á að nýta tæknilausnir til umbóta

Við leitum að einstaklingi sem

  • Sýnir frumkvæði og hefur framúrskarandi samskipta- og samstarfshæfni
  • Býr yfir skipulagshæfni og getur unnið sjálfstætt
  • Hefur drifkraft til að leiða þróun og umbætur
  • Nær að sameina fagmennsku, yfirsýn og framkvæmdagleði

Starfsstöð er á Keflavíkurflugvelli og bjóðum við upp á rútuferðir milli höfuðborgarsvæðisins og flugvallarins fyrir starfsfólk Isavia.

Isavia er vinnustaður þar sem við sýnum hvert öðru virðingu og erum heiðarleg gagnvart sjálfum okkur og öðrum. Við gætum þess að viðhalda gleðinni, erum hugrökk, uppbyggileg og tökum ábyrgð á eigin frammistöðu. Saman náum við árangri.

Við bjóðum upp á hollan og góðan mat í mötuneytum okkar og allt starfsfólk hefur aðgang að heilsu- og líkamsræktarstöðvum sér að kostnaðarlausu.

Umsóknarfrestur er til og með 18. ágúst 2026.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Bryndís Jóna Magnúsdóttir, námsbrautarstjóri, í gegnum netfangið [email protected].

Umsóknum skal fylgja ferilskrá ásamt kynningarbréfi með rökstuðningi um hæfni viðkomandi í starfið.

Við hvetjum áhugasama aðila, án tillits til kyns og uppruna, til að sækja um.

Auglýsing birt4. ágúst 2026
Umsóknarfrestur18. ágúst 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Keflavíkurflugvöllur, 235 Reykjanesbær
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Hreint sakavottorðPathCreated with Sketch.HugmyndaauðgiPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.Textagerð
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar