

Skarðshlíðarskóli óskar eftir að ráða kennara í fullt starf í ÍSAT-kennslu
Í Skarðshlíðarskóla eru áhugasamir og skemmtilegir nemendur, metnaðarfullt starfsfólk og öflugur foreldrahópur. Við leggjum áherslu á góðan starfsanda, teymiskennslu, fjölbreytta kennsluhætti, SMT skólafærni og að allir nemendur nái góðum árangri í leik og starfi. Mílan er órjúfanlegur hluti af skólastarfinu en í því felst að nemendur og starfsfólk fer út daglega og gengur, skokkar eða hleypur í 15 mínútur.
Gildi skólans eru samvinna, vinátta og þrautseigja.
Skarðshlíðarskóli er heildstæður grunnskóli með nemendur í 1. til 10.bekk. Skólahúsnæðið er glæsilegt og er skólinn vel tækjum búinn, með íþróttahús, útibú frá Tónlistarskóla Hafnarfjarðar og fjögurra deilda leikskóli í samtengdu skólahúsnæði.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Annast kennslu í íslensku sem öðru máli
- Annast stöðumat á nýjum nemendum í íslensku
- Taka þátt í móttökuviðtölum
- Vinna eftir áherslum aðalnámskrá grunnskóla í íslensku sem annað mál, menningarfærni og fjöltyngi í skólastarfi
- Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk
- Vinna samkvæmt stefnu skólans
- Vinna að því að skapa gott andrúmsloft í skólanum og tryggja öryggi og velferð nemenda og starfsfólks
- Önnur verkefni skv. starfslýsingu
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Leyfisbréf til kennslu (Leyfisbréf fylgi umsókn)
- Frumkvæði og skipulögð vinnubrögð
- Jákvæðni og áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi og vera opinn fyrir fjölbreyttum
- kennsluháttum.
- Haldgóð þekking og reynsla af kennslu í íslensku sem öðru máli
- Leikni í fjölbreyttum kennsluháttum, námaðlögun og samþættingu
- Lipurð og jákvæðni í samskiptum og sveigjanleiki í starfi
- Víðtæk tölvukunnátta og góð þekking á G-suite og Mentor
- Góð íslenskukunnátta. Miðað er við hæfniviðmið C1 samkvæmt viðmiðum Evrópska tungumálarammans
- Áhugi á teymiskennslu og þverfaglegu samstarfi
Skilyrði fyrir ráðningu er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð
Nánari upplýsingar veita Ingibjörg Magnúsdóttir, skólastjóri, í síma 6645871, [email protected] og Margrét Lilja Pálsdóttir, aðstoðarskólastjóri, í síma 6645861, [email protected]
Umsóknarfrestur 13. ágúst 2026
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Starfsmannafélag Hafnarfjarðar.
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.
Íslenska

















