
Vogaskóli - kennari á unglingastig og í íslenskuver
Vegna forfalla þá vantar kennara á unglingastig og í íslenskuver frá 1. ágúst - 31. desember 2026 og möguleiki á ráðningu út skólaárið. Leitað er eftir metnaðarfullum, sjálfstæðum og drífandi kennara sem er tilbúinn til að sinna kennslu á unglingastigi og í íslenskuveri. Meðal kennslugreina á unglingastigi er danska og upplýsinga - og tæknimennt. Í íslenskuveri er það íslenskukennsla. Þar eru nemendur sem eru nýfluttir til Íslands og eru að hefja nám í íslensku.
Vogaskóli er heildstæður grunnskóli með um 430 nemendur og um 80 starfsmenn. Skólinn er staðsettur við Skeiðarvog í Vogahverfinu í Reykjavík. Þar er einnig sérdeild fyrir einhverfa nemendur. Unnið er eftir menntastefnu Reykjavíkur ,,Látum draumana rætast“, uppbyggingarstefnunni og verið er að innleiða aðferðir leiðsagnarnáms. Í skólanum ríkir jákvæður skólabragur sem einkennist af virðingu, samkennd, samvinnu, gleði og ábyrgð. Við skólann er íslenskuver borgarhlutans, fyrir nemendur í 5. - 10. bekk sem eru nýfluttir til Íslands og eru að hefja nám í íslensku.
- Kennsla á unglingastigi og í íslenskuveri.
- Vinna að þróun skólastarfs í samstarfi við aðra starfsmenn skólans.
- Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við fagfólk og foreldra.
- Leyfi til að nota starfsheitið kennari
- Menntun og hæfni til að kenna flestar greinar á miðstigi
- Íslenskukunnátta á stigi B1 samkvæmt evrópska tungumálarammanum Self-assessment Grids (CEFR) - European Language Portfolio (ELP) (coe.int)
- Sveigjanleiki og góð hæfni í samskiptum
- Faglegur metnaður, frumkvæði og sjálfstæði
- Góð almenn tölvukunnátta
https://innri.reykjavik.is/is/mos/heilsuefling/heilsutengd-hlunnindi
Íslenska










