Regnboginn
Regnboginn
Regnboginn

Leikskólakennari - Regnboginn leikskóli

Við leitum eftir að ráða leikskólakennara til bætast í starfshóp Regnbogans sem nú þegar samanstendur af traustu og flottu fagfólki.

Regnboginn er 3ja deilda, sjálfstætt starfandi leikskóli í Ártúnsholti, Reykjavík.

Leikskólinn vinnur í anda Reggio Emilia stefnunnar með áherslu á skapandi starf, tilfinningalega styðjandi umhverfi og læsi.

Einkunnarorð skólans eru "Börn eru merkilegt fólk" og gildin okkar eru gleði - virðing - umhyggja. Við leitumst eftir að skapa barnvænt umhverfi, rækta tillitssemi, vináttu og kærleika.

Í Regnboganum starfar öflugur hópur starfsfólks sem er samheldinn, skemmtilegur og jákvæður. Rík áhersla er á að skapa jákvæða og uppbyggjandi vinnustaðamenningu.

Í síðustu starfsánægjukönnun svaraði allt starfsfólk því að þau myndu mæla með Regnboganum sem vinnustað!

Ef þú ert að leita að faglegum, metnaðarfullum og notalegum vinnustað með frábæru samstarfsfólki þá er Regnboginn rétti staðurinn fyrir þig.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Fanney Guðmundsdóttir skólastjóri á netfanginu [email protected] og Sigríður Ámundadóttir rekstraraðili á netfanginu [email protected]

Daglegur vinnutími er 7 klst og 15 mínútur

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Taka þátt í skipulagningu faglegs starfs deildarinnar undir stjórn deildarstjóra
  • Vinna að uppeldi og menntun barna samkvæmt starfslýsingu leikskólakennara
  • Tekur þátt í gerð skólanámskrár, mati á starfi skólans og öðrum verkefnum undir stjórn skólastjóra.
  • Vinnur í nánu samstarfi við foreldra
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Leikskólakennaramenntun og leyfisbréf kennara
  • Ef ekki fæst leikskólakennari verður horft til háskólamenntunar sem nýtist í starfi með börnum.
  • Mjög góð íslenskukunnátta
  • Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum
  • Jákvæðni og frumkvæði í starfi
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
  • Hreint sakavottorð
Auglýsing birt2. ágúst 2026
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Bleikjukvísl 10, 110 Reykjavík
Starfstegund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar