Regnboginn
Regnboginn
Regnboginn

Við leitum að dásamlegum samstarfsaðilum

Regnboginn leikskóli óskar eftir að ráða leiðbeinandur í 100% stöður.

Um er að ræða tvær stöður, ein 100% staða og ein tímabundin staða vegna fæðingarorlofs (með möguleika á áframhaldandi starfi).

Regnboginn er 3ja deilda, einkarekinn leikskóli í Ártúnsholti, Reykjavík.

Leikskólinn vinnur í anda Reggio Emilia stefnunnar með áherslu á skapandi starf, tilfinningalega styðjandi umhverfi og læsi.

Vinnutímastytting hjá okkur er tekin daglega og er vinnutími er 7 klst og 15 mínútur. 

Einkunnarorð skólans eru "Börn eru merkilegt fólk" og gildin okkar eru gleði - virðing - umhyggja. Við viljum skapa barnvænt umhverfi, rækta tillitsemi, vináttu og kærleika og stuðla þannig að góðum samskiptum.

Í Regnboganum starfar öflugur hópur starfsfólks sem er samheldinn, skemmtilegur og jákvæður. Rík áhersla er á að skapa jákvæða og uppbyggjandi vinnustaðamenningu. 

Í síðustu starfsánægjukönnun svaraði allt starfsfólk því að þeir myndu mæla með Regnboganum sem vinnustað! 

Ef þú ert að leita að faglegum, metnaðarfullum og notalegum vinnustað með frábæru samstarfsfólki þá er Regnboginn rétti staðurinn fyrir þig.

Daglegur vinnutími er 7 klst og 15 mínútur og er ráðið í stöðuna til lengri tíma (ekki sumarstarf).

Nánari upplýsingar veita Fanney Guðmundsdóttir, skólastjóri, í netfanginu [email protected] og Sigríður Ámundadóttir, rekstraraðili, í netfanginu [email protected]

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Menntun og/eða reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum æskileg
  • Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum
  • Frumkvæði í starfi og stundvísi
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
  • Mjög góð íslenskukunnátta
Auglýsing birt2. ágúst 2026
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Bleikjukvísl 10, 110 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.Stundvísi
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar