

Stuðningsfulltrúi - Grunnskólinn í Borgarnesi
Grunnskólinn í Borgarnesi óskar eftir að ráða karlkyns stuðningsfulltrúa í samþætt verkefni fyrir skólaárið 2026-2027. Ef næst ekki að manna með karlkyns stuðningsfulltrúa verða aðrar umsóknir skoðaðar.
Við leitum að ábyrgum aðila í samþætt starf stuðningsfulltrúa í 100% stöðuhlutfall. Þetta starf felst í stuðningi á yngsta stigi fram að hádegi og í Frístund eftir hádegi, auk þess fellur Sumarfjör Frístundar hér undir. Unnið er náið í teymi með stuðningsfulltrúum, kennurum, þroskaþjálfa og öðrum sérfræðingum.
Í Grunnskólanum í Borgarnesi eru um 330 nemendur í 1.–10. bekk og um 60 starfsmenn. Við skólann starfar öflugur samhentur starfsmannahópur með það að leiðarljósi að gera gott skólastarf enn betra.
Gildi skólans eru sjálfstæði, ábyrgð, virðing og samhugur.
Aðstoða við daglegar athafnir og virka þátttöku í skólastarfi
Vinna eftir áætlun sem kennari og/eða þroskaþjálfi hefur útbúið
Reynsla af starfi með börnum er æskileg
Menntun sem nýtist í starfi
Góð íslenskukunnátta á stigi C1 samkvæmt evrópska tungumálarammanum
Samskipta- og samstarfshæfni
Frumkvæði og faglegur metnaður í starfi
Jákvæðni og sveigjanleiki
Afsláttur af árskorti í íþróttamiðstöðvar Borgarbyggðar
Afsláttur hjá Símanum
Afsláttur á bókasafninu
Íslenska





















