Borgarbyggð
Borgarbyggð
Borgarbyggð

Verkefnastjóri skipulagsfulltrúa

Sveitarfélagið Borgarbyggð leitar að drífandi og metnaðarfullum verkefnastjóra til starfa á sviði skipulagsmála, með góða heildarsýn og þekkingu á skipulags-, byggingar- og umhverfismálum.

Verkefnastjóri starfar í nánu samstarfi við skipulagsfulltrúa og ber ábyrgð á stjórnun og eftirfylgni verkefna á sviði skipulagsmála, ásamt því að vera með hæfni til að vinna þvert á fagsvið þar sem skipulags-, byggingar- og umhverfismál tvinnast saman. Starfið krefst frumkvæðis, fagmennsku og góðrar yfirsýnar yfir flókin verkefni.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Móttaka á umsóknum í gegnum þjónustugátt Borgarbyggðar.
  • Yfirferð umsókna og vinnsla fylgigagna, skráning, skjalavarsla og eftirfylgni umsókna.
  • Samskipti við hagsmunaaðila, hönnuði, ráðgjafa og stofnanir.
  • Undirbúningur mála fyrir nefndir og ráð og þátttaka á fundum.
  • Aðkoma að breytingum á aðal- og deiliskipulögum, ásamt úrvinnslu á framkvæmdarleyfum, grenndarkynningum , og umsjón með skipulagsgátt.
  • Önnur tilfallandi verkefni á sviðinu.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi. Skipulagsfræði, byggingarfræði, landslagsarkitektúr eða sambærilegt.
  • Góð þekking og reynsla af skipulags- og opinberri stjórnsýslu er æskileg.
  • Rík samskipta- og þjónustulund.
  • Hæfni til að vinna sjálfstætt og í teymi, ásamt því að hafa góða skipulagshæfni og geta unnið með mörg verk samtímis.
  • Góð íslenskukunnátta í ræðu og riti.
  • Færni í notkun tölvuforrita.
Frekari upplýsingar um starfið

Launakjör eru samkvæmt gildandi samningum Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag.

Með umsókninni skal fylgja starfsferilsskrá og starfsleyfi ef við á. Umsókninni skal einnig fylgja kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.

Um er að ræða 100% staðbundið starf í Borgarbyggð.

Starfssvið: Skipulags- og umhverfissvið.

Umsóknafrestur er til og með 21.júlí n.k.

Nánari upplýsingar veitir Guðný Elíasdóttir sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs Borgarbyggðar, netfang [email protected]

Auglýsing birt7. júlí 2026
Umsóknarfrestur3. ágúst 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Digranesgata 2, 310 Borgarnes
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Skipulag
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar