
Borgarbyggð
Borgarbyggð er fallegt, friðsælt og fjölskylduvænt sveitarfélag á Vesturlandi, í nálægð við allt sem skiptir máli.
Við leitum eftir öflugum og drífandi einstaklingum sem sýna metnað og frumkvæði í starfi. Borgarbyggð hefur einsett sér að leggja aukna áherslu á notendamiðaða þjónustuhönnun, tækniframþróun og þjónustu við íbúa og viðskiptavini.
Í þeirri vegferð sem er framundan ætlum við að efla þjónustu sveitarfélagsins og vera tilbúin að mæta áskorunum framtíðarinnar. Áhersla verður lögð á þverfaglegt samstarf í verkefnamiðuðu umhverfi og frekari þróun innra starfs sem leiði í senn til framúrskarandi þjónustu og öflugs vinnuumhverfis.
Gildi Borgarbyggðar í starfsmannamálum eru: virðing, áreiðanleiki og metnaður sem höfð eru að leiðarsljósi í stefnum og markmiðum í starfi.

Félagsráðgjafi í barnavernd
Fjölskyldusvið Borgarbyggðar leitar að öflugum félagsráðgjafa í barnaverndarþjónustu Vesturlands.
Um er að ræða krefjandi, fjölbreytt og spennandi starf í umhverfi sem reynir á framúrskarandi skipulags- og samskiptahæfni. Ráðning er til eins árs með möguleika á áframhaldandi ráðningu.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Ábyrgð á allri almennri vinnslu barnaverndarmála, s.s móttaka tilkynninga, skráning, könnun máls og gerð meðferðaráætlana.
- Vinnsla við fóstur- og vistunarmál.
- Bakvaktir í barnavernd skv. samningi þar um.
- Veita ráðgjöf og sinna málstjórn í stuðningsteymum vegna þjónustu í þágu farsældar barna.
- Koma að uppbyggingu á barnaverndarþjónustu Vesturlands og samstarf við sveitarfélögin er koma að þjónustunni.
- Þátttaka í þverfaglegri teymisvinnu og samstarf við lykilstofnanir.
- Veita ráðgjöf og stuðning við barnafjölskyldur í sveitarfélaginu.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Starfsréttindi í félagsráðgjöf eða önnur háskólamenntun sem nýtist í starfi.
- Víðtæk þekking og reynsla á sviði barnaverndar, farsældar og meðferð fjölskyldumála.
- Þekking og reynsla af þverfaglegri teymisvinnu og málstjórn.
- Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum og lausnamiðuð viðhorf.
- Frumkvæði, sjálfstæði og sveigjanleiki í starfi.
- Skipulagshæfileikar og sjálfstæð vinnubrögð.
- Góð íslenskukunnátta í ræðu og riti.
Fríðindi í starfi
- Sveigjanlegur vinnutími
- Heilsustyrkur til starfsmanna
- Handleiðsla
Auglýsing birt29. júní 2026
Umsóknarfrestur13. júlí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Digranesgata 2, 310 Borgarnes
Starfstegund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (10)

Málstjóri í farsæld
Borgarbyggð

Stuðningsfulltrúi - Grunnskólinn í Borgarnesi
Borgarbyggð

Umsjónarmaður frístundar í Borgarnesi
Borgarbyggð

Launafulltrúi
Borgarbyggð

Náms- og starfsráðgjafi við Grunnskóla Borgarfjarðar
Borgarbyggð

Leiðbeinandi í Öldunni - virkni og hæfing fyrir einstaklinga með skerta starfsgetu
Borgarbyggð

Stuðningsfulltrúi í frístund á Varmalandi
Borgarbyggð

Stuðningsfulltrúi í frístund á Hvanneyri
Borgarbyggð

Stuðningsfulltrúi í frístund á Kleppjárnsreykjum
Borgarbyggð

Stuðningsfulltrúi í frístund Borgarnesi
Borgarbyggð
Sambærileg störf (12)

Málastjóri í Laufeyjarteymi
Landspítali

Ráðning þroskaþjálfa eða annars háskólamenntaðs sérfræðings til starfa á íbúðakjarna fyrir fólk með fötlun - Drekavellir
Hafnarfjarðarbær

Leiðtogi fatlaðs fólks og eldra fólks
Sveitarfélagið Skagafjörður

Málstjóri í farsæld
Borgarbyggð

Félagsráðgjafi í ráðgjafarteymi
Hafnarfjarðarbær

Félagsráðgjafi í ráðgjafarteymi - tímabundið starf til 31. des.2026
Hafnarfjarðarbær

Þroskaþjálfi óskast til starfa á skammtímadvöld fyrir fötluð ungmenni - Hnotubergi
Hafnarfjarðarbær

Viltu breyta lífi barna? - Þorláksskóli
Þorláksskóli

Vesturmiðstöð auglýsir eftir félagsráðgjafa í deild barna og fjölskyldna
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Félagsráðgjafi - Heilsugæslan Fjörður
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins

Sálfræðingur í heilbrigðisþjónustu við börn sem hafa orðið fyrir ofbeldi
Landspítali

Ráðgjafi barna og fjölskyldna
Velferðarsvið Kópavogsbæjar