Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins

Félagsráðgjafi - Heilsugæslan Fjörður

Hefur þú áhuga á fjölbreyttum, krefjandi og skemmtilegum verkefnum í starfi sem er í stöðugri þróun ?

Heilsugæslan Fjörður leitar að félagsráðgjafa í nýtt og spennandi starf en um er að ræða ábyrgðarmikil og krefjandi verkefni fyrir einstakling sem hefur áhuga á nýsköpun og þróun innan heilsugæslu. Félagsráðgjafi starfar í þverfaglegu teymi með læknum, hjúkrunarfræðingum, sálfræðingum og öðru fagfólki í fjölbreyttu og metnaðarfullu starfsumhverfi þar sem frumkvæði og sjálfstæði fær að njóta sín.

Um er að ræða 50 - 60% ótímabundið starf og æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 1. september, eða eftir nánara samkomulagi.

Heilsugæslan er fyrsti viðkomustaður í heilbrigðisþjónustunni þar sem mætt er ólíkum þörfum notenda í nærumhverfi þeirra og þeim veittar leiðbeiningar inn í önnur úrræði heilbrigðiskerfisins eftir þörfum. Unnið er markvisst að þróun þjónustu með það að leiðarljósi að bæta þjónustu við skjólstæðinga

Heilsugæslan Fjörður býður upp á fjölskylduvænt vinnufyrirkomulag og gott starfsumhverfi og hjá okkur ríkir góður starfsandi.

Til greina getur komið að ráða tímabundið áhugasaman reynsluminni félagsráðgjafa í ábyrgðarminna starf fáist ekki félagsráðgjafi með reynslu í starfið.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Þátttaka í þróun og uppbyggingu félagsþjónustu í heilsugæslu

  • Teymisvinna með læknum, hjúkrunarfræðingum, ljósmæðrum, riturum og sálfræðingum

  • Einstaklingsbundin stuðningsviðtöl og ráðgjöf sem lítur að sálfélagslegum vanda ásamt framfærsluúrræðum, félagslegum úrræðum og réttindamálum

  • Fjölskylduráðgjöf af ýmsum toga

  • Samstarf við aðrar stofnanir og þjónustuveitendur s.s. heilbrigðisstofnanir, þjónustumiðstöðvar, starfsendurhæfingu, TR, SÍ o.fl.

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Starfsleyfi frá embætti landlæknis til að starfa sem félagsráðgjafi

  • Hefur að jafnaði a.m.k. 2 ára starfsreynslu í faggreininni

  • Faglegur metnaður og áhugi á uppbyggingu félagsþjónustu í heilsugæslu

  • Sjálfstæði, frumkvæði og lausnamiðuð nálgun í starfi

  • Reynsla og áhugi fyrir þverfaglegri teymisvinnu

  • Góð samskiptahæfni, lipurð og sveigjanleiki í samskiptum

  • Góð íslenskukunnátta skilyrði

  • Góð almenn tölvukunnátta

Fríðindi í starfi
  • Heilsustyrkur
  • Samgöngustyrkur
Auglýsing birt19. júní 2026
Umsóknarfrestur10. júlí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Fjarðargötu 13-15
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FagmennskaPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SveigjanleikiPathCreated with Sketch.Teymisvinna
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar