

Hjúkrunarfræðingur - Heilsugæslan Árbæ
Hefur þú gaman af fólki og heilsu?
Heilsugæslan Árbæ óskar eftir að ráða hjúkrunarfræðingi til starfa. Um er að ræða 80-100% ótímabundið starf og æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 1. ágúst nk. eða eftir nánara samkomulagi.
Við leitum að hjúkrunarfræðingi sem hefur áhuga á fjölbreyttum, krefjandi og skemmtilegum verkefnum í starfi sem er í stöðugri þróun.
Hjá Heilsugæslunni Árbæ starfar sérhæft og metnaðarfullt starfsfólk í hvetjandi og áhugaverðu starfsumhverfi þar sem frumkvæði og sjálfstæði fær að njóta sín. Hjá okkur ríkir góður starfsandi og áhersla er lögð á náið samstarf fagstétta og teymisvinnu.
Ný og spennandi tækifæri eru til starfsþróunar innan HH, þar sem hjúkrunarfræðingum stendur til boða að þróa sig í starfi s.s starfsþróunarár og sérnám í heilsugæsluhjúkrun. Heilsugæslan Árbæ leggur áherslu á einstaklingsmiðaða aðlögun og stuðning við nýja starfsmenn.
Nánari upplýsingar um starfsemi stöðvarinnar má finna á vef Heilsugæslunnar (island.is/s/HH).
Starf hjúkrunarfræðings er fjölbreytt og víðtækt, allt frá símaráðgjöf til bráðaþjónustu. Helstu verkefnin sem felast í starfinu eru hjúkrunarmóttaka og skólahjúkrun á samt öðrum verkefnum.
Hjúkrunarmóttakan sinnir fólki á öllum aldri. Í hjúkrunarmóttöku er tekið á móti erindum sem koma á heilsugæslustöðina samdægurs og minna bráðum erindum, s.s. lyfjagjöfum, saumatöku, sárameðferð, gerðar ýmsar rannsóknir og ferðamannaheilsuvernd. Í heilsueflandi móttöku er tekið á móti einstaklingum með langvinnan vanda svo sem sykursýki eða offitu. Heilsuvernd eldra fólks er einnig vaxandi þjónusta á heilsugæslunni.
Skólahjúkrunarfræðingur sinnir reglubundnu heilbrigðiseftirliti nemenda og fræðslu. Auk þess sinnir hann öðrum viðfangsefnum sem upp kunna að koma í samstarfi við annað starfsfólk skólans og foreldra eftir þörfum hverju sinni.
-
Íslenskt hjúkrunarleyfi
-
Reynsla af skóla- og/eða heilsugæsluhjúkrun æskileg
-
Reynsla af fjölskylduhjúkrun æskileg
-
Áhugi og vilji til að vinna með börnum og fjölskyldum
-
Áhugi á forvörnum og heilsueflandi starfi
-
Færni í fyrirlestrahaldi
-
Áhugi á réttindum barna
-
Sjálfstæði í starfi, skipulagningarhæfni og öguð vinnubrögð
-
Reynsla og áhugi á teymisvinnu
-
Reynsla af bráða- og slysamóttöku er kostur
-
Mikil samskiptahæfni og sveigjanleiki
-
íslenskukunnátta og góð almenn tölvukunnátta
- Starfsþróun
- Heilsustyrkur
- Samgöngustyrkur
Íslenska
Enska










