
Heilsugæslan Kirkjusandi
Grunnheilbrigðisþjónustu er sinnt á Heilsugæslunni Kirkjusandi. Boðið er upp á lækna- og hjúkrunarmóttöku, heilsueflandi móttöku, ung- og smábarnavernd, mæðravernd, sálfræðiþjónustu, blóðrannsókn og aðrar rannsóknir.
Sjá heimasíðu.

Viltu breyta til? Hjúkrunarfræðingur í dagvinnu á Heilsugæslu.
Heilsugæslan á Kirkjusandi auglýsir eftir hjúkrunarfræðingi í 80-100% framtíðarstarf eða eftir nánara samkomulagi.
Heilsugæslan er einkarekin stöð sem býður upp á góðan starfsanda og góða starfsaðstöðu, en stöðin flutti í nýtt og glæsilegt húsnæði í 105 Reykjavík, árið 2022.
Í boði er fjölbreytt starf á líflegum og ört vaxandi vinnustað þar sem áhersla er lögð á persónulega þjónustu við okkar skjólstæðinga ásamt góðri samvinnu milli starfsstétta.
Helstu verkefni og ábyrgð
Starfið felst í ungbarnavernd og skólahjúkrun ásamt hjúkrunarmóttöku og símaráðgjöf til skjólstæðinga á öllum aldri með bráð- og krónísk vandamál.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Íslenskt hjúkrunarleyfi
- Menntun eða reynsla af heilsugæsluhjúkrun er kostur.
- Reynsla af hjúkrun barna er mikill kostur ásamt annarri starfsreynslu við hjúkrun.
- Stundvísi og áreiðanleiki
- Góð íslenskukunnátta
- Framúrskarandi samskiptahæfni og sveigjanleiki eru skilyrði
- Góð almenn tölvukunnátta
Auglýsing birt11. júní 2026
Umsóknarfrestur23. júlí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Hallgerðargata 13, 105 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
FagmennskaHreint sakavottorðMannleg samskiptiSamskipti í símaSjálfstæð vinnubrögðSnyrtimennskaStundvísi
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Hjúkrunarfræðingar á bráðalyflækningadeild A2 Fossvogi
Landspítali

Hjúkrunarfræðingur á storkumeinastöð, dagvinna
Landspítali

Hjúkrunarfræðingur í geðhvarfateymi - dagvinna
Landspítali

Hjúkrunarfræðingur í ígræðsluteymi
Landspítali

Hjúkrunarfræðingur á Brjóstamiðstöð
Landspítali

Hjúkrunarfræðingur á legudeild geðrofssjúkdóma
Landspítali

Hjúkrunarfræðingur á útskriftarmiðstöð í Fossvogi
Landspítali

Hjúkrunarfræðingur á skurðlækningadeild Fossvogi
Landspítali

Hjúkrunarfræðingur - Blóðbankinn Glerártorgi
Landspítali

Skurðhjúkrunarfræðingar á skurðstofur við Hringbraut
Landspítali

Hjúkrunarfræðingur/ Teymisstjóri geðteymis fangelsa
Landspítali

Starf ritara taugalækninga
Landspítali